Dagur íslenska táknmálsins Rannveig Sverrisdóttir skrifar 11. febrúar 2014 06:00 Í dag, 11. febrúar 2014, er degi íslenska táknmálsins fagnað í annað sinn. Í kjölfar laga frá árinu 2011 um íslenska tungu og íslenskt táknmál kom mennta- og menningarmálaráðherra á fót Málnefnd um íslenskt táknmál og lagði nefndin til að íslenska táknmálið fengið sinn eigin dag til samræmis við dag íslenskrar tungu. Stofndagur Félags heyrnarlausra, 11. febrúar, varð fyrir valinu. Íslenskt táknmál er fyrsta mál um 2-300 Íslendinga en töluvert fleiri tala það sem annað mál, annaðhvort í vinnu eða heima fyrir. Tengsl menningar og máls eru óumdeild og því eiga þeir sem tala íslenskt táknmál sem fyrsta mál sinn sérstaka menningarheim sem mótast hefur af sögu táknmálsins og málsamfélagsins í áranna rás. Þeir sem búa á Íslandi og tala íslenskt táknmál, eiga þó líka annan menningarheim, menningarheim íslenskunnar og er rituð íslenska þeirra annað mál. Í dag, á degi íslenska táknmálsins, standa Málnefnd um íslenskt táknmál og Rannsóknarstofa í táknmálsfræðum fyrir málþingi um mót þessara tveggja heima og um ávinning samfélagsins af táknmáli og menningarheimi þess.Mismunandi milli landa Sú ranghugmynd að táknmál sé alþjóðlegt er sterk í hugum manna og virðist erfitt að leiðrétta þá hugmynd. Staðreyndin er hins vegar sú að táknmál eru mismunandi á milli landa og þjóða og eru fjölbreytt eins og raddmálin. Fyrir rúmum 50 árum færði bandaríski málfræðingurinn William Stokoe sönnur á það að ASL, bandaríska táknmálið, væri fullkomið mál sem lyti í grunninn sömu lögmálum og önnur tungumál, þ.e. raddmál. Áður en Stokoe birti sínar rannsóknir var almennt talið að táknmál væru ekki tungumál heldur einungis látbragð. Mörg ár og jafnvel áratugi tók að riðla þeirri hugmynd og sífellt þurfti að færa rök fyrir því að táknmál væru mál. Frá sjónarhóli málvísinda eru öll tungumál jöfn og enginn vafi leikur á því að táknmálsrannsóknir hafa fært málvísindum ný sannindi um virkni og þróun tungumála. Í dag efast því enginn um að táknmál séu mál. Það reynist hins vegar erfitt að breyta hugmyndinni um alþjóðleika táknmála sem segir okkur að hugmyndir manna um mál töluð með röddu og mál töluð með höndum eru ólíkar. Táknmál heimsins skipta a.m.k. tugum og líklega hundruðum, allt eftir því hvernig við skilgreinum mál. Táknmál í ólíkum löndum eru lík að formgerð en þau eru misskyld. Innan hvers táknmáls má líka sjá breytileika, eins og mállýskur, unglingamál og barnamál. Á sama hátt og menning mótar mál þeirra sem tala raddmál þá mótar menningin táknmál á hverjum stað. Íslenskt táknmál er því sérstakt, ekkert mál er alveg eins og það. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson Skoðun Skoðun Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand skrifar Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ekki er allur afgangur eins Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Sjá meira
Í dag, 11. febrúar 2014, er degi íslenska táknmálsins fagnað í annað sinn. Í kjölfar laga frá árinu 2011 um íslenska tungu og íslenskt táknmál kom mennta- og menningarmálaráðherra á fót Málnefnd um íslenskt táknmál og lagði nefndin til að íslenska táknmálið fengið sinn eigin dag til samræmis við dag íslenskrar tungu. Stofndagur Félags heyrnarlausra, 11. febrúar, varð fyrir valinu. Íslenskt táknmál er fyrsta mál um 2-300 Íslendinga en töluvert fleiri tala það sem annað mál, annaðhvort í vinnu eða heima fyrir. Tengsl menningar og máls eru óumdeild og því eiga þeir sem tala íslenskt táknmál sem fyrsta mál sinn sérstaka menningarheim sem mótast hefur af sögu táknmálsins og málsamfélagsins í áranna rás. Þeir sem búa á Íslandi og tala íslenskt táknmál, eiga þó líka annan menningarheim, menningarheim íslenskunnar og er rituð íslenska þeirra annað mál. Í dag, á degi íslenska táknmálsins, standa Málnefnd um íslenskt táknmál og Rannsóknarstofa í táknmálsfræðum fyrir málþingi um mót þessara tveggja heima og um ávinning samfélagsins af táknmáli og menningarheimi þess.Mismunandi milli landa Sú ranghugmynd að táknmál sé alþjóðlegt er sterk í hugum manna og virðist erfitt að leiðrétta þá hugmynd. Staðreyndin er hins vegar sú að táknmál eru mismunandi á milli landa og þjóða og eru fjölbreytt eins og raddmálin. Fyrir rúmum 50 árum færði bandaríski málfræðingurinn William Stokoe sönnur á það að ASL, bandaríska táknmálið, væri fullkomið mál sem lyti í grunninn sömu lögmálum og önnur tungumál, þ.e. raddmál. Áður en Stokoe birti sínar rannsóknir var almennt talið að táknmál væru ekki tungumál heldur einungis látbragð. Mörg ár og jafnvel áratugi tók að riðla þeirri hugmynd og sífellt þurfti að færa rök fyrir því að táknmál væru mál. Frá sjónarhóli málvísinda eru öll tungumál jöfn og enginn vafi leikur á því að táknmálsrannsóknir hafa fært málvísindum ný sannindi um virkni og þróun tungumála. Í dag efast því enginn um að táknmál séu mál. Það reynist hins vegar erfitt að breyta hugmyndinni um alþjóðleika táknmála sem segir okkur að hugmyndir manna um mál töluð með röddu og mál töluð með höndum eru ólíkar. Táknmál heimsins skipta a.m.k. tugum og líklega hundruðum, allt eftir því hvernig við skilgreinum mál. Táknmál í ólíkum löndum eru lík að formgerð en þau eru misskyld. Innan hvers táknmáls má líka sjá breytileika, eins og mállýskur, unglingamál og barnamál. Á sama hátt og menning mótar mál þeirra sem tala raddmál þá mótar menningin táknmál á hverjum stað. Íslenskt táknmál er því sérstakt, ekkert mál er alveg eins og það.
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar
Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar
Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar