Ætla að hreyfa sig í öllum veðrum alltaf Gunnar Leó Pálsson skrifar 24. júlí 2014 09:30 Rakel Eva Sævarsdóttir heldur utan um hópinn, Áform. Mynd/Einkasafn „
Þetta er æfingahópur sem er opinn öllum og við æfum á morgnana í Reykjavík,“ segir Rakel Eva Sævarsdóttir íþróttakona. Hún stýrir æfingahópi sem er nýr af nálinni og kallast hópurinn Áform. „Ég er nýkomin frá Cambridge í Massachusetts þar sem ég tók þátt í íþróttahópi undir yfirskriftinni November Project og má segja að það sem ég sé að gera sé í líkingu við það sem ég kynntist úti,“ segir Rakel Eva. Hópurinn sem Rakel Eva var í, var stofnaður af tveimur félögum hennar þegar hún var við nám í Cambridge, fyrir um tveimur árum. „Þeir félagar vildu finna sér leið til þess að halda sér í formi allt árið um kring, fyrir engan pening og hafa líka gaman,“ bætir Rakel Eva við. November Project er nú í sautján borgum í Bandaríkjunum og í Kanada. „Eftir að hafa verið í November Project í smá tíma gat ég hlaupið Boston-maraþonið.“Hér sjáum við hluta hópsins á æfingu klukkan 06.30 að morgni miðvikudags.Mynd/EinkasafnHún segir að ekki sé hægt að líkja umræddum íþróttahópi við crossfit eða því um líkt. „Þetta er og verður alltaf frítt. Eina skilyrðið fyrir fólk til þess að mæta er bara að það hafi áhuga á að hreyfa sig, formið skiptir ekki máli. Ég held bara utan um hópinn og vil fá alls konar fólk til að mæta.“ Hópurinn hittist síðast í gær og æfði í tröppunum fyrir framan aðalbyggingu Háskóla Íslands en þetta var í þriðja sinn sem að hópurinn hennar Rakelar Evu hittist. Hún ætlar ekki að láta íslenska veðurfarið hafa áhrif á íþróttaiðkunina og ætlar að æfa í öllum veðrum. „Ég ætla ekki að láta veðrið hafa nein áhrif. Við æfðum í öllum veðrum í Bandaríkjunum, þó það hafi verið tuttugu stiga frost. Fólk klæðir sig bara vel og hefur gaman,“ segir Rakel Eva og hlær. Þeir sem vilja komast í æfingahóp Rakelar Evu, geta haft samband í gegnum facebook síðu undir nafninu, Áform og þar er hægt að nálgast upplýsingar.Örlítið um November Project Um er að ræða íþróttahóp sem Brogan Graham og Bojan Mandaric stofnuðu í Boston árið 2011. Þeir vildu finna leið til þess að halda sér í formi allt árið um kring, fyrir engan pening og hafa líka gaman af. November Project hópar eru nú starfræktir í sautján borgum í Bandaríkjunum og Kanada. Hóparnir fara af stað klukkan 6.30 á morgnanna og eru hundruðir manna sem sprikla í November Project-hópum á mismunandi stöðum. Æfingarnar eru í þrjátíu til fjörtíu mínútur í senn. Alls kyns æfingar eru iðkaðar eins og ýmis hlaup, styrktaræfingar eins og armbeygjur, Burpees og ýmislegt annað.
Mest lesið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Tónlist „Klukkan er fimm einhvers staðar“ Lífið Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Lífið Snæddi með furstanum af Mónakó Lífið Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Lífið Málarameistari afhjúpar algengustu mistökin í sumarverkefnunum Lífið samstarf Bylgjulestin fer norður á morgun Lífið samstarf Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? Lífið Fleiri fréttir „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Sjá meira