Sjón og kollegar hans skora á Pútín 6. febrúar 2014 10:06 Sjón er í hópi 200 rithöfunda sem sendu rússneskum yfirvöldum opið bréf í Guardian.
Lögin sem samþykkt hafa verið að undanförnu í Rússlandi og setja verulegar skorður á umræðu um samkynhneigð og guðlast eru ógn við frelsið. Þetta segja tvöhundruð rithöfundar frá þrjátíu löndum sem í dag birta opið bréf í breska blaðið Guardian þar sem þeir skora á Vladímír Pútín Rússlandsforseta að nema lögin úr gildi. Skáldið Sjón, handhafi íslensku bókmenntaverðlaunanna, er á meðal þeirra sem skrifa undir bréfið. Af öðrum höfundum má nefna Nóbelsverðlaunahafana Gunter Grass, Wole Soyinka, Elfriede Jelinek og Orham Pamuk. Þá eru á listanum heimsþekktir höfundar á borð við Margaret Atwood, Salman Rushdie, Neil Gaiman, Carol Ann Duffy og Jonathan Franzen, svo nokkrir séu nefndir. Eitt fremsta núlifandi skáld Rússa, Ludmyla Úlitskaija, er einnig á meðal þeirra sem skrifa undir. Í bréfinu er bent á að rússneskir rithöfundar og blaðamenn hafi ávallt reynt að láta í sér heyra, sama hvað gengið hefur á í hinni viðburðarríku sögu Rússlands. Lögin sem samþykkt hafi verið síðustu átján mánuði í landinu geri þeim nú svo erfitt fyrir að segja má að tjáningafrelsið sé nú í kverkataki lagasetninga. Rithöfundarnir segjast ekki geta staðið hljóðir hjá og fylgst með kollegum sínum í Rússlandi setja sig í bráða hættu með því einu að tjá skoðanir sínar og hugsanir. Þeir benda á að heilbrigt lýðræði þrífist ekki nema raddir allra fái að heyrast og að alþjóðasamfélagið verði að fá að heyra fjölbreyttar skoðanir Rússa. Þessvegna skora þeir á Pútín og samstarfsmenn hans að afturkalla lögin og átta sig á skyldum yfirvalda með tilliti til alþjóðalaga til að viðurkenna félagsleg og pólitísk réttindi og virða skoðanafrelsið, tjáningafrelsið og trúfrelsið.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira