Börnin á puttanum með pabba Gunnar Leó Pálsson skrifar 19. júlí 2014 08:00 Þær Kolbrún og Lára vinna vel saman. Vísir/Arnþór Birkisson „
Við skrifuðum söguna saman en vorum þó á sitthvorum staðnum á hnettinum,“ segir Kolbrún Anna Björnsdóttir, rithöfundur og leikkona, en hún skrifar bókina, Á puttanum með pabba, ásamt Völu Þórsdóttur rithöfundi og leikkonu en Vala býr á Möltu. „Við unnum saman í gegnum Skype og það gekk alveg ótrúlega vel, það var bara eins og við værum í sama herberginu,“ bætir Kolbrún Anna við. Sagan gerist í sumarfríi íslensk-ítölsku systkinanna Sonju og Frikka á Sikiley en þau eyða sumrinu með pabba, afa og ömmu. Fríið byrjar ekki vel því amma og afi verða snögglega að sinna veikum frænda og pabba er boðið draumahlutverk í kvikmynd á Spáni. Allt í einu er enginn til staðar á Sikiley til að sjá um systkinin. Á meðan pabbi reynir að fá pössun hjá vinum og nágrönnum kaupa systkinin flugmiða heim til Íslands en eini gallinn er að mamma er ekki heima og svarar ekki símanum. Þess vegna fylgir pabbi systkinunum til Íslands í þeirri trú að mamma finnist fljótt. „Sagan var upphaflega skrifuð sem sjónvarpsþáttaröð en það gekk illa að fjármagna framleiðsluna, þannig að við byrjum allavega á bók,“ segir Kolbrún Anna. Hún útilokar þó ekki að sagan fari á hvítatjaldið. „Kannski verður þetta að bíómynd eða þáttum að lokum, það kemur í ljós.“ Þær standa nú fyrir söfnun á söfnunarsíðunni Karolina Fund til þess að fá aðstoð við að gefa út söguna, bæði sem rafbók og á prenti. „Textinn er þegar kominn en okkur langar að gæða persónur og söguna lífi með fallegum teikningum eftir Láru Garðarsdóttur,“ segir Kolbrún Anna. Kolbrún segir söguna taka á ýmsum staðalímyndum, að skipt sé um kynjahlutverk og að jafnrétti sé að leiðarljósi. „Á ferðalagi sínu hitta persónurnar aðrar persónur sem umsnúa hugmyndum um staðalímyndir og hlutverk kynjanna. Þær hitta meðal annars bónda sem er kona og mótorhjólagengi sem skipað er karlmönnum sem er hjúkkur og tannlæknar. Við snúum upp á staðalímyndir víðsvegar,“ útskýrir Kolbrún Anna. Söfnunin er ný hafin en þær hafa strax fengið góð viðbrögð og eru bjartsýnar á framhaldið.
Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Costanza á klakanum Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Fleiri fréttir Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Sjá meira