Lífið

,,Takk allir sem hjálpuðu til"

Ellý Ármanns skrifar
Þráinn Árni Baldvinsson.
Þráinn Árni Baldvinsson.
,,Það var eins og ég hélt. Hljómsveit ein ónefnd var að ganga frá sínu dóti og strákarnir tóku óvart töskuna mína með sér," segir Þráinn Árni Baldvinsson gítarleikari Skálmöld sem týndi gítardótinu sínu á tónlistarhátíðinni Eistnaflugi eins og lesa má hér.

Pokinn fundinn

,,Mannleg mistök en þökk sé öflugu fólki, bæði á Feisbókinni sem og öðrum samfélagsmiðlum, sem tókst að finna töskuna. Ég fæ hana vonandi í hendurnar á næstu dögum," segir gítarleikarinn.

,,Takk allir sem hjálpuðu til og dreifðu hjálparbeiðninni. Ég er gríðarlega þakklátur, meir og akkúrat núna - sultuslakur," bætir hann við áður en kvatt er.




Tengdar fréttir

Stolið frá Skálmöld?

Þráinn Árni Baldvinsson í hljómsveitinni Skálmöld leitar nú að gítardótinu sínu sem var stolið á Eistnaflugi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.