Kim búin að fara tvisvar í bíó síðan á sunnudag Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 1. júlí 2014 09:30 Vísir/Getty
DV sagði frá því í gær að raunveruleikastjarnan Kim Kardashian West, eiginmaður hennar, rapparinn Kanye West og dóttir þeirra North, sem nýverið varð eins árs, hefðu lent á Reykjavíkurflugvelli á sunnudagsmorgun. Samkvæmt heimildum DV ætlaði parið meðal annars að heimsækja Bláa lónið. Það er líklegast borin von að Kim sé hér á landi ef marka má meðfylgjandi myndir.Kim yfirgefur kvikmyndahús í New York á sunnudagskvöldið.Kim fór nefnilega í bíó með Malika Haqq, bestu vinkonu systur Kim, Khloe, á sunnudag í South Hampton í New York. Kim sá kvikmyndina The Fault in Our Stars en þegar myndinni lauk var Kim fljót að tísta um hve hrifin hún var af þessari rómantísku mynd. Í gær fór hún síðan í hádegismat í South Hampton með systur sinni, Kourtney, sem gengur með sitt þriðja barn. Kim hefur greinilega talað mikið um fyrrnefnda kvikmynd því í gærkvöldi skellti hún sér aftur í bíó á myndina, ásamt systrum sínum Khloe og Kourtney og móður sinni Kris Jenner. Aftur tísti Kim um bíóferðina.Í hádegismat í New York í gærdag.Kanye var ekki með í för enda er hann á tónleikaferðalagi um heiminn. Hann skemmti á Bravalla-hátíðinni í Svíþjóð á laugardag og treður upp í Dyflinni á Írlandi annað kvöld. Rapparinn gæti því verið á Íslandi enda stutt flug frá Svíþjóð til Íslands og aftur tiltölulega stutt að ferðast frá Íslandi til Írlands.Aftur mætt í bíó í New York í gær.Kris (vinstra megin) fer í bíó.Khloe fer í bíó.Kourtney fer í bíó.
Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Costanza á klakanum Lífið Sahara Ray látin Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Fleiri fréttir Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Sjá meira