Reykjavík er rosalegt púsluspil Kristjana Arnarsdóttir skrifar 25. júlí 2014 13:30 Fjölmiðlakonan og arkitektinn Vala Matt þræðir fjölbreyttar götur ásamt þjóðþekktum viðmælendum í sjónvarpsþættinum Gatan mín. fréttablaðið/stefán „
Það er mjög áhugavert að sjá hvað göturnar í Reykjavík eru ótrúlega fjölbreyttar. Borgin er svo mikill bútasaumur,“ segir fjölmiðlakonan og arkitektinn Vala Matt, en á þriðjudaginn hefur þátturinn Gatan mín göngu sína á Stöð 2. Í þættinum hittir Vala nokkra þjóðþekkta einstaklinga og fer með þeim í gönguferð um uppáhaldsgötur þeirra, götur sem þeir hafa búið við eða götur sem eru í einstöku uppáhaldi. Í fyrsta þættinum þræðir hún Kaplaskjólsveg ásamt Hraðfréttamanninum Benedikt Valssyni. „Benedikt er Vesturbæingur í húð og hár og við förum vel yfir blokkina sem hann er alinn upp í á Kaplaskjólsveginum. Í hverjum þætti fáum við svo Pétur Ármannsson arkitekt til að flétta inn sögu götunnar og hverfisins en skyggnumst einnig í myndaalbúm Íslendinganna og sjáum gamlar myndir af þeim á heimaslóðum,“ segir Vala, sem bregður sér einnig út á land.„Við komum við á Spítalavegi á Akureyri en þar ætlar Kristján Jóhannsson að segja okkur allt um dvölina þar. Þá liggur leiðin á Hof á Hofströndum þar sem Lilja Pálmadóttir sýnir okkur nýja húsið þeirra Baltasars og bóndabæinn sem þau gerðu upp.“ Vala segir höfuðborgina okkar töluvert frábrugðna erlendum stórborgum. „Ef maður skoðar borgir erlendis sér maður fljótlega að það er ákveðinn stíll og stefna sem eru ríkjandi, eins og til dæmis í Kaupmannahöfn og London. Reykjavík er hins vegar rosalegt púsluspil.“
Mest lesið Ofboðslega stolt af dóttur sinni Lífið Myndaveisla: Rosaleg stemming í kosningavökunum Lífið Klæddu sig upp sem frambjóðendur Lífið Tvöföld veisla hjá Gnarr feðgum Lífið Bannaði Snorra að kjósa Arnar Þór Lífið „Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ Tónlist Fékk að heyra að konur ættu ekki heima á sjó Lífið „Nú er þessi sprettur á enda“ Lífið Herra Hnetusmjör og Sara selja íbúðina Lífið Kosningavökur frambjóðenda: Hvar verða mestu fagnaðarlætin? Lífið Fleiri fréttir Klæddu sig upp sem frambjóðendur Myndaveisla: Rosaleg stemming í kosningavökunum Tvöföld veisla hjá Gnarr feðgum Ofboðslega stolt af dóttur sinni Bannaði Snorra að kjósa Arnar Þór „Nú er þessi sprettur á enda“ Kosningavökur frambjóðenda: Hvar verða mestu fagnaðarlætin? Fréttatía vikunnar: Kosningar, eldgos og meistarar Fékk að heyra að konur ættu ekki heima á sjó Segir brjóst myndast við mikla bjórdrykkju Frambjóðendum gekk misvel í hraðaspurningum Kjúklinganaggar hollu stjúpunnar Innipúkinn farinn að taka á sig mynd Sigga á Grund er fyrsti heiðursborgari Flóahrepps Af vængjum fram: Grínaðist alltaf með að láta húðflúra einstefnuskilti á rassgatið Þetta höfðu netverjar að segja um kappræðurnar Ellefu eftirtektarverð eldhús Forsetaáskorunin: Grefur upp gamlar gersemar úti um allan heim. Herra Hnetusmjör og Sara selja íbúðina Skrifuðu bók um Sólrúnu Öldu og brunann í Mávahlíð Nafn konunnar flúrað á það allra heilagasta Annar bakaradrengur í ofninum Sjáðu svartþrestina yfirgefa hreiðrið Af vængjum fram: Eins og í bíómynd þegar þau byrjuðu loksins saman Forsetaáskorunin: Áhugatöframaður og hefur safnað skeljum og eldspýtustokkum Kosningavökumolar Höllu og Bjössa Millie Bobby og Bon Jovi yngri í hnapphelduna Einstök hæð í retró stíl við Laufásveg Margar konur sem leita á fæðingarheimilin sjálfar á barnsaldri Vandaði Eurovision ekki kveðjurnar á tónleikum Sjá meira