Á fjórða tug með fíkniefni í Laugardalnum Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 22. júní 2014 10:02 vísir/kolbeinn tumi
Nóg var um að vera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Á fjórða tug einstaklinga voru kærðir fyrir vörslu fíkniefna á tónlistarhátíðinni Secret Solstice í Laugardal. Í gær voru rúmlega þrjátíu teknir með fíkniefni á fyrrnefndri hátíð. Ung kona, í annarlegu ástandi, var færð í fangageymslur rétt eftir klukkan níu í gærkvöld. Við handtökuna beit konan lögreglukonu í handlegg og var lögreglukonan flutt á slysadeild til aðhlynningar. Unga konan verður vistuð fangageymslur þar til ástand hennar lagast. Lögreglumenn mældu hraða bifreiðar á Miklubraut á 118 kílómetra hraða um klukkan 23 í gærkvöld. Ökumaðurinn reyndi að stinga lögreglu af en var handtekinn skömmu síðar. Ökumaðurinn og farþeginn, kærasta ökumannsins, voru bæði undir áhrifum áfengis og fíkniefna og fundust fíkniefni í fórum þeirra beggja. Bæði voru þau færð í fangageymslur. Þá voru tveir aðrir stöðvaðir, grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna. Annars vegar í Breiðholti og hins vegar í Kópavogi. Tilkynnt var um líkamsárás í heimahúsi í umdæmi lögreglunnar í Kópavogi og Breiðholti klukkan tvö í nótt. Karlmaður var sleginn í andlit og hugsanlega nefbrotinn. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar og var árásarmaðurinn vistaður í fangageymslu. Þá var karlmaður í annarlegu ástandi handtekinn á veitingahúsi við Laugaveg um klukkan fjögur í nótt. Manninum hafði verið vísað út og reiddist hann við það og sparkaði í rúðu og braut hana. Maðurinn var færður í fangageymslu og verður vistaður þar á meðan ástand hans lagast.
Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Fleiri fréttir Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Sjá meira