Taktfastir trommutöfrar í Hörpu Gunnar Leó Pálsson skrifar 14. ágúst 2014 15:00 Pétur Grétarsson listrænn stjórnandi Jazzhátíðar Reykjavíkur lofar magnaðri hátíð. Vísir/GVA „
Mér finnst þessi hátíð líta ótrúlega vel út og er geysilega ánægður með hana,“ segir Pétur Grétarsson, listrænn stjórnandi Jazzhátíðar Reykjavíkur, en hátíðin hefst í kvöld. Alveg óvart hefur hátíðin tekið á sig taktfasta mynd en nokkrir heimsþekktir trommuleikarar koma fram á hátíðinni í ár. „Það eru þrír erlendir snillingar að koma hingað að spila, Kúbumeistarinn Pedrito Martinez, sem er einhver flottasti konguleikari sem ég hef séð í mörg ár, og djassundrin Ari Hoenig og Jim Black sem eru báðir alveg frábærir trommuleikarar,“ segir Pétur. Auk þess koma nokkrir íslenskir trommusnillingar fram á hátíðinni. Ari Hoenig verður meðal annars með fyrirlestur í Kaldalóni klukkan 14.00 á laugardag en hann kemur fram með kvartetti Andrésar Thors á föstudagskvöldið. Jim Black spilar með sínu eigin tríói á föstudagskvöld og með hljómsveitinni Pachora á laugardagskvöld. Jazzhátíð Reykjavíkur er haldin í 25. sinn í ár og fer fram í Hörpu. Hún býður upp á tónleika með alþjóðlegu úrvalsliði djasslistamanna auk þess að leggja ríka áherslu á tónleika með því besta sem völ er á úr íslensku tónlistarlíf. Oftar og oftar fer þetta saman þar sem íslenskt djasstónlistarfólk starfar úti um allan heim. „Staða djassins hér á landi er mjög sterk í alþjóðlegu samhengi, við erum rík af flottu tónlistarfólki og ég lofa flottri hátíð.“Dagskrá kvöldsins: 17.00- Undirbúningur fyrir skrúðgöngu Jazzhátíðar. Safnast saman hjá Lucky Records við Hlemm. 17.30 - Tak sax þinn og gakk! Listamenn hátíðarinnar og velunnarar ganga fylktu liði frá Lucky Records að Hörpu. 19.00 - Opnunarhátíð í Hörpuhorni. Skemmtilegar ræður og óvænt tónlistaratriði. Opnun ljósmyndasýningar Slawek Przerwa. 20.00 - Chris Speed Trio í Björtum loftum. 21.00 - Pedrito Martinez Group í Norðurljósum. 22.30 - Jam Session. Gestgjafi: Kristján Tryggvi Martinsson í Björtum loftum
Mest lesið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Crawford minnist sonarins Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Lífið samstarf Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið Fleiri fréttir Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Sjá meira