Heklaði soninn í heiminn 14. ágúst 2014 12:00 Rósu Hlín og manni hennar tókst að eignast Sigfús Inga eftir glasafrjóvgun sem hún safnaði fyrir með því að selja heklaða hringi. Kristín Jónsdóttir
Rétt fyrir utan Borgarnes er Ljómalind, sveitamarkaður þar sem íslenskt handverk og matvæli beint frá býli eru seld. Meðal annarra fallegra hluta sem þar má finna eru heklaðir hringir eftir Rósu Hlín Sigfúsdóttur. „Hugmyndin að hringjunum kom eftir að ég sá mynd af konu í blaði sem var með stóran hring sem líktist blómi. Þá datt mér í hug að ég gæti heklað blóm og búið til hring. Ég prófaði og fólk fór að spyrja mig út í hringina og vildi kaupa. Þetta vatt svo allt saman upp á sig og spurðist út. Ég seldi hringina í Borgarnesi og á Facebook,“ segir Rósa Hlín. Þar sem salan á hringjunum gekk svona vel sá hún leið til að fjármagna glasafrjóvgun en Rósa Hlín og maður hennar höfðu reynt að eignast barn í nokkurn tíma. „Eins og allir vita er glasafrjóvgun mjög dýr en á hálfu ári seldi ég yfir þúsund hringi þannig að það dugði fyrir meðferð og öllum aukakostnaði, svo sem ferðakostnaði og kostnaði við heilun, nálastungu, sálfræðiþjónustu og fleiru. Þetta virkaði allt saman og okkur tókst að eiga barn þannig að það má segja að ég hafi heklað soninn, Sigfús Inga, í heiminn,“ segir hún og brosir. Sveitamarkaðurinn Ljómalind var stofnaður af tólf konum af Vesturlandi og þeirra á meðal er Rósa Hlín. Á markaðnum eru eingöngu seldar vörur frá Vesturlandi og þegar Ljómalind var opnuð var Rósa Hlín beðin um að hafa hringina þar til sölu. „Ég hélt að markaðurinn væri mettur af þessum hringjum en það seldist allt sem ég átti til þannig að ég hef þurft að gera meira af þeim. Ég hef alla tíð haft mjög gaman af handavinnu og skemmtilegast finnst mér að hekla. Ég er úr sveit þar sem ekki var nein Stöð 2 og það varð oft rafmagnslaust og þá var gott að geta dundað við handavinnuna. Mér finnst gaman að hekla stór og kósí teppi úr íslenskri ull en ég hekla líka margt annað og prjóna.“
Mest lesið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Crawford minnist sonarins Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Lífið samstarf Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið Fleiri fréttir Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Sjá meira