„Síðustu dagar hafa verið afar erfiðir“ Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 13. febrúar 2014 15:16 „Fólk ætti stundum að líta sér nær áður en það fer að dæma aðra, fullt af þessu fólki hefur ekkert efni á því að dæma mig, það lenda allir einhvern tíman í erfiðleikum,“ segir Birna. VÍSIR/VALLI/SAMSETT „
Síðustu dagar hafa verið afar erfiðir,“ segir barnsmóðir manns sem tók af sér nektarmyndir sem dreift var meðal unglinga í Grindavík og rötuðu í fjölmiðla. Barnsmóðirin, Birna Járnbrá Hrólfsdóttir, fékk myndirnar sendar í síðustu viku en þá höfðu þær höfðu verið í dreifingu meðal bæjarbúa í einhvern tíma. „Nú þegar DV er búið að fjalla um þetta eru sjálfsagt allir á landinu búnir að sjá þessar myndir,“ segir hún í samtali við Vísi. Birna skrifaði opið bréf sem hún birti í Kvennablaðinu fyrr í dag. Eftir að hún fékk myndirnar sendar ákvað hún að slíta sambandinu við barnsföður sinn. Hann er nú fluttur út og fluttur úr bænum.Barið á húsið öllum stundum Í Grindavík þekkja allir alla að sögn Birnu sem segist hafa orðið fyrir talsverðu áreiti vegna þessa. Börn og unglingar úr grunnskóla bæjarins séu búin að berja á glugga og hurðar heimilis hennar öllum stundum. „Krakkarnir eru meðal annars að koma hérna þegar þau eru í frímínútum,“ segir Birna. „Ég hef verið að fá skítköst ef svo má segja frá fleirum en börnum,“ segir Birna. „Ég hringdi út á pósthús í fyrradag til þess að kanna eitt mál og fékk þá yfir mig spurningar um af hverju ég væri að athuga með þetta og mér var mætt með dónaskap sem var alveg óþarfi.“ Birnu grunar að þessi framkoma sé tilkomin vegna myndanna. Eins og sjáist á myndunum sé barnsfaðir hennar einn á þeim og ekkert við myndirnar bendi til þess að hann sé barnaníðingur þó hann sé hugsanlega eitthvað kynferðislega brenglaður. „Að því leytinu finnst mér umfjöllunin um þetta mál vera ósanngjörn.“ Foreldrar barna í bænum sögðu í samtali við DV í gær að það versta við myndirnar og þetta allt saman væri að maðurinn byggi rétt hjá grunnskóla bæjarins. „Ég vil að það komi skýrt fram að hann býr ekki hérna lengur. Ég er auðvitað mjög reið við hann en hann er ekki barnaníðingur og á enga sögu um neitt slíkt,“ segir Birna. „Barnaníð og kynferðisleg brenglun er alls ekki það sama og mér þykir þetta mjög ljótt að því leytinu til.“Fjölskyldan stendur við bak Birnu Sem betur fer hafi eldra barnið hennar sem er á leikskólaaldri ekki fengið að finna fyrir þessu. Fjölskylda Birnu og vinir standa þétt við bakið á henni á þessum erfiðu tímum. Því miður hafi aðrir leyft sér að dæma hana vegna þessara mynda. „Fólk ætti stundum að líta sér nær áður en það fer að dæma aðra. Fullt af þessu fólki hefur ekkert efni á því að dæma mig. Það lenda allir einhvern tímann í erfiðleikum,“ segir Birna. Birna vonast eftir því að bréfið sem hún birti veki fólk til umhugsunar en þar segir hún„Barnsfaðir minn er sjálfstæð persóna og ég er ekki hann. Ég get ekkert í því gert hvaða hegðun hann sýnir en ég get stýrt mínum eigin gjörðum. Máttur internetsins er mjög mikill og hefur oft skæðar og ljótar afleiðinga eins og í mínu tilfelli.Vöndum okkur við segjum á netinu, í mannlegum samskiptum og líka þegar aðrir heyra ekki til.“Ég vona kæru Grindvíkingar að þið sjáið aðra hlið á þessu máli eftir mína frásögn og sýnið mér stuðning. Ég þarf fremur á aðstoð ykkar að halda en útskúfun ykkar.“
Mest lesið Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Innlent Hafði komið sér í fyrir á háalofti hótels Innlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Erlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Kuldaskil á leið yfir landið Veður Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Fyrstu þreifingar áramótaveðurspár Veður Fleiri fréttir Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér í fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Sjá meira