Heildarmynd af höftunum: Erlendar skuldir og forsendur afnáms Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar 16. apríl 2014 00:00 Erlendar skuldir og greiðsluvandi þjóðarinnar eru nú í brennidepli efnahagsumræðunnar. Helsta áhyggjuefnið snýr að umfangi þessara skulda og stórum afborgunum erlendra lána á næstu árum. Þessir þættir geta ógnað jafnvægi hagkerfisins og komið í veg fyrir að hægt sé að aflétta fjármagnshöftum.Erlendar skuldir þurfa að nýtast til uppbyggingar hérlendis Íslenska hagkerfið hefur viðhaft neikvæða erlenda skuldastöðu um árabil og landið er í dag mun skuldugra en nágrannaríkin. Skuldastaðan er nær stöðu hinna svokölluðu PIIGS-ríkja, en þau lentu í vandræðum með erlendar skuldir sínar í evrukrísunni á árunum 2009-13. Hærra skuldahlutfalli fylgir aukin hætta á efnahagslegum óstöðugleika auk þess sem háar vaxtagreiðslur úr landi draga úr þrótti hagkerfisins til lengri tíma litið. Neikvæð erlend skuldastaða getur verið eðlileg ef hún skýrist af fjárfestingum sem auka útflutningstekjur og framleiðslugetu hagkerfisins. Í dag orsakast hún hins vegar að miklu leyti af skuldum við aðila sem ekki vilja fjárfesta hér til langs tíma. Þessum skuldum þarf að skipta út fyrir fjármagn sem nýtist til uppbyggingar atvinnulífs hérlendis til að ekki sé vegið að framtíðarvexti hagkerfisins.Greiðsluvandinn og snjóhengjan leggjast saman Án endurfjármögnunar núverandi skulda nemur halli á gjaldeyrisflæði til og frá landinu um 750 ma. kr. yfir næstu sex ár vegna hárra afborgana erlendra lána. Þetta er hinn svokallaði greiðsluvandi íslenska þjóðarbúsins og úr honum þarf að leysa ef afnám hafta á að vera möguleiki. Í ofanálag þarf að vera til staðar nægur gjaldeyrir til að losa um snjóhengjuna, þ.e. greiða fyrir útgöngu þeirra aðila sem vilja færa fjármuni sína úr landi við afnám. Séu þessir tveir þættir lagðir saman gæti gjaldeyrisþörfin numið um 130% af landsframleiðslu.Langtímastefna og afnámsáætlun skipta miklu fyrir framtíðina Afnám hafta mun að miklu leyti velta á því hvort innlendir aðilar geti mætt þessari miklu endurfjármögnunarþörf með sjálfbærum hætti. Í því felst að „óþolinmóðu“ fjármagni verði skipt út fyrir erlent langtímafjármagn á hagstæðum kjörum. Til að svo megi verða þarf aukin vissa að ríkja um framtíðarhorfur hagkerfisins, bæði til lengri og skemmri tíma.Langtímastefna í efnahagsmálum þarf að tryggja áframhaldandi uppbyggingu útflutningsgreina, bætta framleiðni og opnun hagkerfisins fyrir erlendri samkeppni og fjárfestingu. Slík stefna mun leiða til aukinnar tiltrúar innlendra og erlendra aðila á íslensku efnahagslífi, sem örvar fjárfestingu og bætir vaxtakjör innlendra aðila. Ef Íslandi tekst að skapa skilyrði fyrir sterkum útflutningsdrifnum hagvexti á næstu árum myndast því mun sterkari grundvöllur fyrir afnámi hafta en ella. Útfærsla á afnámi haftanna þarf að styðja við langtímastefnuna. Fyrirtæki í alþjóðlegri starfsemi munu hafa ráðandi áhrif á framtíðarvöxt útflutningstekna. Til að stjórnendur þeirra kjósi að byggja upp starfsemina hérlendis er nauðsynlegt að þeir trúi að afnám hafta sé í sjónmáli. Einnig þarf að leysa úr vanda fjármálakerfisins, sem er að meirihluta í eigu þrotabúa í dag og skortir erlenda fjármögnun til að styðja við alþjóðlegan vöxt íslenskra fyrirtækja. Þá þurfa einstaklingar að geta ávaxtað sparifé sitt erlendis, bæði í gegnum lífeyrissjóði og á eigin vegum, svo þeir njóti sömu tækifæra og íbúar annarra ríkja. Til að afnámsáætlun verði trúverðug þarf hún að ná heildstætt yfir vanda allra þessara aðila. Takist að leggja fram slíka áætlun mun tiltrú á íslenskt efnahagslíf aukast nær samstundis og róðurinn verða mun auðveldari í kjölfarið. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Hagfræðin á Heimildinni Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Norskir herrar eða íslenskir? Þóra Bergný Guðmundsdóttir Skoðun Heimilisleysi blasir við öryrkjum Svanberg Hreinsson Skoðun Að mæðra barn í hjarta sínu Hólmfríður Anna Baldursdóttir Skoðun Heimildin sem hvarf úr frumvarpi matvælaráðherra Vala Árnadóttir Skoðun Öll með? – 4.020 kr. hækkun fyrir skatt eftir 16 mánuði! Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Við styðjum Guðmund Karl! Katrín Valdís Hjartardóttir,Andrea Bóel Bæringsdóttir,Guðbjörg Harpa Ingimundardóttir Skoðun Hvers vegna Halla Tómasdóttir? Guðjón Sigurðsson Skoðun Af hverju ertu að bjóða þig fram? Sigurður Ragnarsson Skoðun Góður forseti G. Pétur Matthíasson Skoðun Skoðun Skoðun Góður forseti G. Pétur Matthíasson skrifar Skoðun Hvers vegna Halla Tómasdóttir? Guðjón Sigurðsson skrifar Skoðun Heimildin sem hvarf úr frumvarpi matvælaráðherra Vala Árnadóttir skrifar Skoðun Sníða sér stakk eftir vexti Guðni Magnús Ingvason skrifar Skoðun Norskir herrar eða íslenskir? Þóra Bergný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Af hverju ertu að bjóða þig fram? Sigurður Ragnarsson skrifar Skoðun Við styðjum Guðmund Karl! Katrín Valdís Hjartardóttir,Andrea Bóel Bæringsdóttir,Guðbjörg Harpa Ingimundardóttir skrifar Skoðun Hagfræðin á Heimildinni Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hreinleikaþráin Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Heimilisleysi blasir við öryrkjum Svanberg Hreinsson skrifar Skoðun Hvað getur Ísland gefið öðrum þjóðum? Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Veðrið, veskið og Íslendingurinn María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Að mæðra barn í hjarta sínu Hólmfríður Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Jákvæður orðaforði eykur hamingju og vellíðan Helga Fjóla Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Öll með? – 4.020 kr. hækkun fyrir skatt eftir 16 mánuði! Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Látum hjartað ráða för Sigrún Traustadóttir skrifar Skoðun Vekjum risann Guðmundur Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Katrín Jakobsdóttir forseti Viðar Pálsson skrifar Skoðun Þjóðarsátt líka fyrir fatlað fólk Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Í ker eða kistu Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Gummi Kalli er rétti kosturinn sem biskup Íslands Áslaug Helga Hálfdánardóttir,Dís Gylfadóttir,Guðni Már Harðarson skrifar Skoðun Gummi Kalli, einlægur, skemmtilegur og frábær leiðtogi Arnar Ragnarsson skrifar Skoðun Ræstingafyrirtæki og starfsmannaleigur í jafnréttisparadísinni Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Forysta til framtíðar Hópur presta skrifar Skoðun Fyrir hverja eru skoðanakannanir? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Án varna, ekkert frelsi Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Mýtan um launin Elsa Nore skrifar Skoðun Samt kýs ég Katrínu Jökull Sólberg Auðunsson skrifar Skoðun Viltu vera memm? Birna Dröfn Birgisdóttir skrifar Skoðun Tíminn að renna út Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Sjá meira
Við styðjum Guðmund Karl! Katrín Valdís Hjartardóttir,Andrea Bóel Bæringsdóttir,Guðbjörg Harpa Ingimundardóttir Skoðun
Skoðun Við styðjum Guðmund Karl! Katrín Valdís Hjartardóttir,Andrea Bóel Bæringsdóttir,Guðbjörg Harpa Ingimundardóttir skrifar
Skoðun Gummi Kalli er rétti kosturinn sem biskup Íslands Áslaug Helga Hálfdánardóttir,Dís Gylfadóttir,Guðni Már Harðarson skrifar
Við styðjum Guðmund Karl! Katrín Valdís Hjartardóttir,Andrea Bóel Bæringsdóttir,Guðbjörg Harpa Ingimundardóttir Skoðun