Að gera skyldu mína Eydís Líndal Finnbogadóttir skrifar 3. mars 2014 07:00 Ég lærði í skátunum að lofa að gera skyldu mína við ættjörðina. Í gegnum tíðina hef ég ekki mikið verið að velta fyrir mér hvað þetta þýddi en með aldrinum hefur þetta loforð æ oftar skotið upp í kollinn á mér. Að lofa að gera skyldu mína þýðir þá væntanlega að við höfum ákveðnar skyldur við ættjörðina eða kannski bara samfélagið. Með hækkandi sól hellast inn á dagatöl okkar fundarboð vegna aðalfunda hinna ýmsu félaga. Konur og menn sitja sveitt við að leita að nýju fólki í stjórnir, nefndir og ráð pólitískra flokka, íþróttafélaga, skóla, ungmennahreyfinga og líknarfélaga svo fátt eitt sé nefnt. Að leita að fólki til þátttöku í stjórnum er hins vegar oft eitt erfiðasta verkefni félaga enda slík störf oftast unnin í sjálfboðavinnu. Svo virðist nefnilega að allir séu svo uppteknir. Svör eins og „Guð! ég má ekki vera að því,“ „Ég hef ekki áhuga“ eða bara „Æ nei, ég held að það sé nú ekki skemmtilegt“ berast um stafræna samskiptakerfið okkar.Skyldur við samfélagið Vissulega kann svo að vera að fólk sé bundið um tíma vegna anna s.s. vegna barna, náms eða veikinda. En hvernig eigum við að halda úti félagsstarfi sem hluta af okkar samfélagi ef við ætlum okkur aðeins að vera þiggjendur? Er kannski kominn tími til að við veltum líka fyrir okkur skyldum okkar við samfélagið? Að við gefum kost á okkur þegar til okkar er leitað og lítum á það sem samfélagsþjónustu okkar vera þátttakendur. Það er nefnilega þannig að kannski þarf ekki allt bara að vera svo æðislega skemmtilegt, kannski þurfum við að vera þátttakendur til að gera verkefni skemmtileg. Kannski ættum við ekki bara að vera upptekin við að taka þátt í íþróttastarfinu á æfingum eða fylgja börnum okkar eftir. Kannski ættum við ekki bara að sitja og agnúast út í þá sem gáfu kost á sér í ráð, nefndir og stjórnir heldur vera þátttakendur. Kannski er kominn tími til að við veltum fyrir okkur að segja já næst þegar leitað er til okkar um þátttöku í stjórn íþróttafélagsins, nefnd hjá skólanum eða að vera á lista hjá stjórnmálaflokknum. Eða, kannski ættum við að vera svo djörf að bjóðast til að vera í stjórninni að fyrra bragði. Kannski verður samfélagið okkar allt aðeins virkara ef við hjálpumst öll að við að gera skyldu okkar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson Skoðun Aukið við sóun með einhverjum ráðum Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skoðun Sanngirni að brenna 230 milljarða króna? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Hvar er hjálpin sem okkur var lofað? Dagmar Valsdóttir Skoðun SFS skuldar Sigurjón Þórðarson Skoðun Áform um fleiri strandveiðidaga: Áhættusöm ákvörðun Svanur Guðmundsson Skoðun Hverjir eiga Ísland? Jón Baldvin Hannibalsson Skoðun Strandveiðar eru ekki sóun Örn Pálsson Skoðun „Ísland mun taka þátt í þvingunaraðgerðum gegn Ísrael náist samstaða fleiri ríkja“ Einar Ólafsson Skoðun Flugnám - Fjórði hluti: Hlutverk Reykjavíkurflugvallar í flugnámi Matthías Arngrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Sanngirni að brenna 230 milljarða króna? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Strandveiðar eru ekki sóun Örn Pálsson skrifar Skoðun „Ísland mun taka þátt í þvingunaraðgerðum gegn Ísrael náist samstaða fleiri ríkja“ Einar Ólafsson skrifar Skoðun SFS skuldar Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Hvar er hjálpin sem okkur var lofað? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Áform um fleiri strandveiðidaga: Áhættusöm ákvörðun Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson skrifar Skoðun Flugnám - Fjórði hluti: Hlutverk Reykjavíkurflugvallar í flugnámi Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Slítum stjórnmálasambandi við Ísrael! Ólafur Ingólfsson skrifar Skoðun Aukið við sóun með einhverjum ráðum Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Kæru valkyrjur, hatrið sigraði líklega í þetta skiptið Arnar Laxdal skrifar Skoðun Vönduð vinnubrögð - alltaf! Jóna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin stóð af sér áhlaup sérhagsmuna Ásthildur Lóa Þórsdóttir skrifar Skoðun Stjórnmál sem virka og lýðræði sem kemst ekki fyrir í umslagi Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Þversögn Íslands í Palestínumálinu: Um fullveldi, samsekt og réttarríkið Gína Júlía Waltersdóttir skrifar Skoðun Tvöföld bið eftir geislameðferð er of löng Katrín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fröken þjóðarmorð: Þér er ekki boðið! Linda Ósk Árnadóttir,Yousef Ingi Tamimi skrifar Skoðun Linsa Lífsins Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun „Að skrifa söguna“ Var of mikið undir hjá kvennalandsliðinu? Viðar Halldórsson skrifar Skoðun Gervigreind í skólum: Tækifæri til byltingar eða hætta á nýjum ójöfnuði? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Netöryggi til framtíðar Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Aftur á byrjunarreit Hörður Arnarson skrifar Skoðun Norðurlandamet í fúski! Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Flugnám -Þriðji hluti: Samtvinnað (Integrated) eða áfangaskipt (Modular) ATPL flugnám Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Ursula Von der Leyen styður stríðsglæpamenn - Ísland á ekki að þegja Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ursula von der Leyen styður þjóðarmorð! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Hvert er markmið fulltrúalýðræðis? Hlynur Orri Stefánsson,Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Ég vona að þú gleymir mér ekki Hlynur Már Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvaða einkunn fékkst þú á bílprófinu? Grétar Birgisson skrifar Skoðun Að koma út í lífið með verri forgjöf, hvernig tilfinning er það? Davíð Bergmann skrifar Sjá meira
Ég lærði í skátunum að lofa að gera skyldu mína við ættjörðina. Í gegnum tíðina hef ég ekki mikið verið að velta fyrir mér hvað þetta þýddi en með aldrinum hefur þetta loforð æ oftar skotið upp í kollinn á mér. Að lofa að gera skyldu mína þýðir þá væntanlega að við höfum ákveðnar skyldur við ættjörðina eða kannski bara samfélagið. Með hækkandi sól hellast inn á dagatöl okkar fundarboð vegna aðalfunda hinna ýmsu félaga. Konur og menn sitja sveitt við að leita að nýju fólki í stjórnir, nefndir og ráð pólitískra flokka, íþróttafélaga, skóla, ungmennahreyfinga og líknarfélaga svo fátt eitt sé nefnt. Að leita að fólki til þátttöku í stjórnum er hins vegar oft eitt erfiðasta verkefni félaga enda slík störf oftast unnin í sjálfboðavinnu. Svo virðist nefnilega að allir séu svo uppteknir. Svör eins og „Guð! ég má ekki vera að því,“ „Ég hef ekki áhuga“ eða bara „Æ nei, ég held að það sé nú ekki skemmtilegt“ berast um stafræna samskiptakerfið okkar.Skyldur við samfélagið Vissulega kann svo að vera að fólk sé bundið um tíma vegna anna s.s. vegna barna, náms eða veikinda. En hvernig eigum við að halda úti félagsstarfi sem hluta af okkar samfélagi ef við ætlum okkur aðeins að vera þiggjendur? Er kannski kominn tími til að við veltum líka fyrir okkur skyldum okkar við samfélagið? Að við gefum kost á okkur þegar til okkar er leitað og lítum á það sem samfélagsþjónustu okkar vera þátttakendur. Það er nefnilega þannig að kannski þarf ekki allt bara að vera svo æðislega skemmtilegt, kannski þurfum við að vera þátttakendur til að gera verkefni skemmtileg. Kannski ættum við ekki bara að vera upptekin við að taka þátt í íþróttastarfinu á æfingum eða fylgja börnum okkar eftir. Kannski ættum við ekki bara að sitja og agnúast út í þá sem gáfu kost á sér í ráð, nefndir og stjórnir heldur vera þátttakendur. Kannski er kominn tími til að við veltum fyrir okkur að segja já næst þegar leitað er til okkar um þátttöku í stjórn íþróttafélagsins, nefnd hjá skólanum eða að vera á lista hjá stjórnmálaflokknum. Eða, kannski ættum við að vera svo djörf að bjóðast til að vera í stjórninni að fyrra bragði. Kannski verður samfélagið okkar allt aðeins virkara ef við hjálpumst öll að við að gera skyldu okkar.
Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson Skoðun
„Ísland mun taka þátt í þvingunaraðgerðum gegn Ísrael náist samstaða fleiri ríkja“ Einar Ólafsson Skoðun
Skoðun „Ísland mun taka þátt í þvingunaraðgerðum gegn Ísrael náist samstaða fleiri ríkja“ Einar Ólafsson skrifar
Skoðun Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson skrifar
Skoðun Flugnám - Fjórði hluti: Hlutverk Reykjavíkurflugvallar í flugnámi Matthías Arngrímsson skrifar
Skoðun Stjórnmál sem virka og lýðræði sem kemst ekki fyrir í umslagi Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Þversögn Íslands í Palestínumálinu: Um fullveldi, samsekt og réttarríkið Gína Júlía Waltersdóttir skrifar
Skoðun Gervigreind í skólum: Tækifæri til byltingar eða hætta á nýjum ójöfnuði? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Flugnám -Þriðji hluti: Samtvinnað (Integrated) eða áfangaskipt (Modular) ATPL flugnám Matthías Arngrímsson skrifar
Skoðun Ursula Von der Leyen styður stríðsglæpamenn - Ísland á ekki að þegja Helen Ólafsdóttir skrifar
Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson Skoðun
„Ísland mun taka þátt í þvingunaraðgerðum gegn Ísrael náist samstaða fleiri ríkja“ Einar Ólafsson Skoðun