Á ótrúlega góða vini Gunnar Leó Pálsson skrifar 30. ágúst 2014 12:00 Marteinn Högni og systir hans, Sigurlaug Tara, eru hér í bolunum og með vasaljósið, sem er líka selt til styrktar sjóðnum og verður lykilatriði í göngunni í dag. Mynd/Einkasafn „
Þetta er stund sem ég mun aldrei gleyma og ég á ekki orð til þess að lýsa því hvað ég er þakklátur fyrir að eiga þessa yndislegu vini sem standa svo sannarlega við bakið á mér,“ segir hinn átján ára gamli Marteinn Högni Elíasson, nemi í Verzlunarskóla Íslands. Þegar hann mætti í skólann í vikunni beið hans fjöldi samnemenda á Marmaranum, sem er samkomusvæði Verzlunarskólans, og klæddust þeir bolum sem eru seldir til styrktar grunnrannsóknum á brjóstakrabbameini og til að minnast móður Marteins Högna. Móðir Marteins Högna, Kristbjörg Marteinsdóttir, Kittý, eins og hún var jafnan kölluð, lést af völdum brjóstakrabbameins í lok árs 2009 eftir að hafa barist við sjúkdóminn í 6 ár. „Þegar mamma greindist með krabbameinið ákvað hún strax að láta ekkert stöðva sig og gekk til að mynda á hverjum og gerði alltaf eittvað á hverjum degi,“ segir Marteinn Högni. Framan á áðurgreindum bol stendur einmitt „Eitthvað á hverjum degi“ sem var einmitt hugsjón Kittýjar.Bekkur Marteins Högna í Versló, 5. F, er svo sannarlega samheldinn og kærleiksríkur.mynd/einkasafnHún hefði orðið fimmtug á árinu og var virkur og ötull félagi í styrktarfélaginu Göngum saman, sem er grasrótarfélag sem styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini, og átti margar hugmyndir að fjáröflun til rannsókna. „Við fjölskyldan eigum hugmyndina að bolunum saman en amma mín hafði mesta frumkvæðið. Mínir nánustu vinir seldu svo boli í skólanum og þegar ég mætti voru nánast allir í bolum,“ bætir Marteinn Högni við. Systir Marteins Högna, Sigurlaug Tara, var tengiliður við vini hans í skólanum og því vissi hann ekkert fyrr en hann mætti í skólann. Bolirnir eru hluti af því sem selt verður til styrktar sjóðnum.Fjöldi nemenda Verzlunarskóla Íslands klæddist bolnum flotta.Mynd/EinkasafnÞá fer Söfnunar- og minningarganga Kittýjar fram í dag en gengið verður frá Héðinsfirði um Héðinsfjarðargöng til Siglufjarðar og að íþróttamiðstöðinni að Hóli þar sem seld verður súpa og brauð. „Mamma ólst upp á Siglufirði og þess vegna fer gangan fram þar,“ bætir Marteinn Högni við. Gangan sem er gjaldfrjáls hefst klukkan 16.00 en fríar rútuferðir verða frá Hóli klukkan 15.00 að upphafsstað göngunnar. Þarna gefst einstakt tækifæri til að fara fótgangandi um Héðinsfjarðargöng. Stofnaður hefur verið reikningur til minningar um Kittýju og rennur allur ágóði til grunnrannsókna á brjóstakrabbameini í samvinnu við Göngum saman, reikningsnúmerið er 1102-26-121264 og kennitala 250645-3179.
Mest lesið Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Lífið „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Lífið Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Menning Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? Lífið Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Lífið Muniz skilinn Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Lífið Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Fleiri fréttir Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sjá meira