Fékk skvísugenið frá ömmu sinni Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 21. ágúst 2014 16:00 "Kærastinn minn hafði alltaf sagt að hann gæti ekkert beðið mín, kjóllinn væri týndur, en nú hafði hann enga afsökun lengur.“mynd / úr einkasafni
Emilía Ottesen, kynningarstjóri Bíóhallarinnar á Akranesi, ákvað strax í barnæsku að gifta sig í brúðarkjól ömmu sinnar og nöfnu. Um tíma leit þó ekki út fyrir að sá draumur myndi rætast. "Amma gifti sig í þessum kjól árið 1967. Ég var alltaf að máta hann þegar ég var lítil og alveg ákveðin í að gifta mig í honum sjálf. Fyrir þremur árum hringdi amma síðan í mig til Hollands, þar sem við kærastinn vorum í námi, og tilkynnti mér það að hún hefði líklega hent kjólnum! Hann hefði farið með gömlum fötum í Rauða krossinn. Þegar ég kom heim ári síðar umturnaði ég fataherberginu hennar ömmu og fann loks kjólinn aftast í litlum kassa. Kærastinn minn hafði alltaf sagt að hann gæti ekkert beðið mín, kjóllinn væri týndur, en nú hafði hann enga afsökun lengur,“ segir Emilía Ottesen hlæjandi en hún og Bjarki Jens G. Scott giftu sig nú í ágúst.Amma Emilíu Ottesen og nafna gifti sig í kjólnum árið 1967. Emilía mátaði kjólinn oft sem barn og ætlaði sér alltaf að gifta sig í honum sjálf. myndir/úr einkasafniKjóllinn smellpassaði en þó þurfti örlítið að breyta honum. „Amma vildi nú ekki að hver sem er færi að fikta við kjólinn. Ég hafði heyrt svo margt gott af Kristínu Berman, textíl- og búningahönnuði, og fékk hana í verkið. Hún breytti bakinu aðeins og lagaði brjóststykkið og slörið örlítið. Amma var alveg í skýjunum yfir því að ég skyldi gifta mig í honum. Pabbi hennar keypti kjólinn fyrir hana á sínum tíma í Parísartískunni.“Brúðarkjóll ömmu var eins og sniðinn á Emilíu svo einungis þurfti að gera smávægilegar breytingar.Nú þegar búið er að nota kjólinn tvisvar í fjölskyldunni er spurning hvort ekki sé búið að skapa ákveðna hefð? „Það væri auðvitað gaman. En ég dansaði kjólinn eiginlega af mér á ballinu eftir brúðkaupið svo það komu nokkrar saumsprettur. Ég þarf örugglega að fara aftur með hann til Kristínu,“ segir Emilía hlæjandi. Brúðarkjóllinn er ekki eina flíkin sem Emilía á í fataskápnum af ömmu sinni. „Amma er með svo vandaðan smekk og tímalausan. Hún er mikil tískupæja og mamma hennar var það líka. Það er eitthvert skvísugen í gangi í fjölskyldunni,“ segir Emilía sposk.
Mest lesið Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Menning Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Lífið Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Lífið Muniz skilinn Lífið Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? Lífið Osaka best klædd á Wimbledon Tíska og hönnun Hlaupaslagur ársins í beinu StuðStreymi frá Dyrfjöllum Lífið samstarf Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Fleiri fréttir Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sjá meira