Monty Python ritskoðaðir Þórður Ingi Jónsson skrifar 21. ágúst 2014 19:00 Monty Python-liðar eru svo áhrifamiklir í heimi grínsins að lýsingarorðið "pythonesque“ eða "pythonískt“ var búið til sérstaklega til að lýsa þeirra sérkennilegu tegund af gríni.
Kveðjuleiksýning bresku grínistanna Monty Python er nú í rannsókn vegna óheflaðs málfars af Ofcom, eftirlitsstofnun með sjónvarpsiðnaðinum í Bretlandi. Sýningin var sjónvörpuð á stöðinni Gold TV. Stofnuninni bárust meira en 30 kvartanir vegna „ógeðfellds orðbragðs“ í sýningunni en Eric Idle, meðlimur grínhópsins, lofaði að sýningin yrði „ansi óhefluð og ógeðsleg“. Í Bretlandi má bara sýna efni bannað innan börnum eftir klukkan 9 á kvöldin en samkvæmt talsmanni Ofcom var talið viðeigandi að ritskoða sýninguna þar sem hún hefði verið sýnd í sjónvarpi fyrir klukkan 9. Margir áhorfendur kvörtuðu undan ritskoðun eftir að einhver blótsyrði voru klippt út úr sýningunni á Gold TV en Ofcom segir að sjónvarpsstöðin hafi ekki klippt út öll blótsyrðin. Þess vegna sé sýningin í rannsókn. „Öllum leyfishöfum okkar er skylt að fara eftir útsendingarreglum okkar, sem gera það skýrt að óheflaðasta málfarið má ekki vera sýnt fyrir klukkan 9 á kvöldin.“ Upptaka af sýningunni var frumsýnd hér á landi í Bíó Paradís 6. ágúst, á svokölluðum Monty Python deginum. Hún verður sýnd til 31. ágúst en sú útgáfa var ekki ritskoðuð. Ritskoðun í kvikmyndum og sjónvarpi á sér langa sögu í Bretlandi en frægt var á níunda áratugnum þegar fjölmargar kvikmyndir voru bannaðar, aðallega hryllingsmyndir. Voru þessar kvikmyndir kallaðar „video nasties“ í Bretlandi en ritskoðunarherferðin gegn þeim var svo gríðarleg að íslenska kvikmyndaeftirlitið lét einnig slag standa og bannaði þessar hundrað kvikmyndir. Enn eru lög í gildi hér á landi um að „bannað sé að framleiða eða flytja til landsins ofbeldiskvikmyndir“.
Mest lesið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Lífið Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið Fleiri fréttir Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete Sjá meira