Martin skoraði sigurkörfu LIU Brooklyn í nótt - 34 íslensk stig Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. desember 2014 08:15 Elvar Már Friðriksson og Martin Hermannsson með Garðari Erni Arnarsyni.
Elvar Már Friðriksson var stigahæstur hjá LIU Brooklyn í nótt þegar liðið fagnaði sínum fjórða sigri í röð nú eftir 73-72 sigur á New Hampshire í framlengdum leik. Það var hinsvegar Martin Hermannsson sem skoraði sigurkörfuna. Íslensku bakverðirnir fóru á kostum í leiknum en Elvar Már var með 19 stig og 3 stoðsendingar en Martin Hermannson skoraði 15 stig, tók 7 fráköst og gaf 4 stoðsendingar. Saman voru íslensku leikmenn LIU Brooklyn með 34 stig, 11 fráköst og 7 stoðsendingar. Martin hitti úr 6 af 10 skotum sínum þar af 2 af 3 fyrir utan þriggja stiga línuna. Báðir spiluðu þeir Elvar og Martin yfir 40 mínútur í leiknum. Elvar átti fyrri hálfleikinn (16 af 19 stigum) en Martin skoraði 12 af stigum sínum í seinni hálfleik og framlengingu. LIU Brooklyn komst í 7-0 í leiknum en Íslendingarnir skoruðu fimm fyrstu stigin, Martin setti fyrst þrist eftir stoðsendingu frá Elvari sem skoraði síðan sjálfur með sniðskoti. LIU var einu stigi yfir í hálfleik, 38-37, en New Hampshire skoraði fimm síðustu stig hálfleiksins. Elvar kom LIU Brooklyn í 64-63 með þriggja stiga körfu en New Hampshire tryggði sér framlengingu með því að setja niður 1 af 2 vítum sínum sextán sekúndum fyrir leikslok. Elvar fékk þriggja stiga skot í lokin en hitti ekki og því varð að framlengja leikinn. Martin Hermannsson skoraði sigurkörfu LIU Brooklyn tíu sekúndum fyrir leikslok en það voru einu stig íslensku bakvarðanna í framlengingunni. íslensku bakvarðanna í framlengingunni.
Körfubolti Mest lesið Tindastóll - Stjarnan 95-96 | Sóttu fyrsta sigurinn þrátt fyrir áföllin Körfubolti KR-ingar komast ekki til Eyja: „Þetta er leiðindamál“ Íslenski boltinn Pressan á Tindastól? „Einhver sálfræði 101 sem hann er að reyna rembast við“ Körfubolti Martröð Chelsea en Brighton gæti endað í Meistaradeild Evrópu Sport Dómaraskandall og augnpot: Hrafn getur bundið enda á áralanga baráttu sína gegn Bean Sport „Bað hann um að segja mér ekki að fokka mér“ Körfubolti Glaður að hafa ekki hlýtt gervigreindinni Fótbolti Neymar æfur: „Enginn maður þolir þetta“ Fótbolti Ungur samherji Elíasar særðist alvarlega í hnífsstungurárás Fótbolti Eðlileg skýring á tættum Laugardalsvelli Fótbolti Fleiri fréttir „Bað hann um að segja mér ekki að fokka mér“ Tindastóll - Stjarnan 95-96 | Sóttu fyrsta sigurinn þrátt fyrir áföllin Fyrstur til að vera kosinn varnarmaður ársins með fullu húsi Pressan á Tindastól? „Einhver sálfræði 101 sem hann er að reyna rembast við“ Úlfarnir og Haukarnir með endurkomur Selfyssingar svöruðu fyrir sig Uppgjörið: Haukar - Keflavík 85-71 | Öruggt hjá Hafnfirðingum í fyrsta leik Martin næstum því með stig á mínútu í öruggum sigri Glímir við mikið áfall: „Ennþá smá dauður að innan“ Of mikil pása gæti verið slæm „Vildi að pabbi væri hérna“ Uppgjörið:Valur - Keflavík 90-74| Valsmenn sendu Keflavík í sumarfrí „Orðnar betri í að standa saman og klára leikinn“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 81-87 | Grindavíkurkonur byrja betur Keflavík hefur ekki unnið oddaleik í fimmtán ár Luke leiddi Lakers til sigurs í fjarveru Luka Hamar/Þór áfram í Bónusdeildinni eftir endurkomusigur Tryggvi góður en liðið tapaði leik sem þurfti að vinnast Kerr íhugar framtíð sína eftir tap í umspilinu Stighæsti leikmaður Ólympíuleikanna látinn Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Sindramenn og Blikar byrja vel Uppgjör: KR-Keflavik 83-91 | Keflavíkurkonur í undanúrslit Luka Doncic vann áfrýjunina og er gjaldgengur fyrir öll verðlaun NBA Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Curry hélt stríðsmönnunum á lífi Völdu kærustu hennar líka númer eitt Uppgjörið: Keflavík-Valur 88-81 | Keflavík tryggði sér oddaleik J. Cole slítur samningi sínum í Kína Olnbogi Ægis brotnaði Sjá meira