Aðför að sjálfsmynd þjóðar Jakob Bjarnar skrifar 4. desember 2014 15:35 Þjóðarsálin er rasandi reið vegna frétta af þeim Beyoncé og Jay-Z.
Íslenskir fjölmiðlar hafa eftir bestu getu greint frá því að stjörnurnar og hjónin Beyoncé og Jay-Z eru stödd hér á landi og fylgst með ferðum þeirra. Um er að ræða eitthvert frægasta fólk í heimi og því vandséð að óeðlilegt geti talist að um ferðir þeirra sé fjallað, hvar sem þau fara vekja þau athygli. Þó um sé að ræða tabloid-blaðamennsku að því leyti til að meiri áhersla er lögð á „hver“ í fréttaflutningunum, fremur en „hvað“, þá er almennt um eins sakleysislegar fréttir að ræða og hugsast getur. Og þær njóta mikillar athygli.Okkur kemur þetta ekki við!!! En, það breytir ekki því að neikvæð viðbrögð við fréttunum hafa verið mikil, og þau má finna á athugasemdum allra vefmiðla landsins. „Látið þau í friði!“ er þemað: „Hættið að fjalla um þetta!“ og „Þetta kemur okkur ekki við!“ eru mildasta útgáfurnar sem finna má, annars er mikill ofsi sem einkennir athugasemdirnar. Engin leið er að fá þessi viðbrögð til að ganga upp röklega; þetta eru, eins og áður sagði, sárasaklausar fréttir og það er ekki eins og neinn sé neyddur til að til að lesa þær. Og er ýmsu í þessu sambandi ruglað saman, hvort heldur er raunveruleg ágengni fjölmiðlafólks og ljósmyndara og svo jafnvel fréttir af hugsanlegri ágengni. Fréttirnar allar þar sem þau eru nefnd á nafn flokkast meðal ýmissa sem áreiti í þeirra garð. Víðast hvar myndu viðbrögð sem þessi vekja furðu, í löndum sem blaðamennska sem þessi hefur tíðkast í ár og öld. Því er ekki óeðlilegt að ætla að þessi ofsafengnu viðbrögð séu reist á einhverju sem hugsanlega er djúpt í iðrum þjóðarsálarinnar sjálfrar?Jón Gunnar segir reiði einkennandi viðbrögð þegar gengið er yfir menningarleg landamæri.Jón Gunnar Bernburg er prófessor í félagsfræði og hann segist ekkert hafa skoðað þetta sérstaklega né rannsakað en telur í sjálfu sér ekki um flókið fyrirbæri að ræða. „Ef ég ætlaði mér að rannsaka þetta myndi ég líklega ræða við þetta fólk sem bregst svona illa við og spyrja það út í þeirra tilfinningar og hvaðan kemur þetta?“Partur sjálfsmyndar þjóðar að abbast ekki uppá frægaEn, af því að ekki er gott að greina ástæður fyrir reiðinni í fljótu bragði, þá er sem þetta sé eitthvað félagssálarfræðilegt, eins og fólk líti á þetta sem einskonar aðför að sjálfsmynd þjóðarinnar? „Við verðum alltaf reið þegar við teljum einhverja vera að brjóta normin. Það gerir okkur reið. Þó það komi okkur ekkert við. Af því að okkur finnst um normin. Við hlýðum þeim. Tengist því sem okkur finnst um rétt og rangt og þess vegna verður fólk reitt. Það gildir almennt séð um alla hegðun sem er á skjön, hegðun sem brýtur gegn siðaboðum. Þetta er tilfinningalegs eðlis.“Og það myndi vera sammannlegt þó þetta tilfelli eigi sérstaklega við um Ísland? „Já, einmitt. Ég myndi halda það. Talað er um menningarleg landamæri. Allir hópar, sérstaklega einsleitir hópar, hafa menningarleg landamæri. Við erum svona, ekki hinsegin. Og við erum ekki svona, eins og að vera að troðast uppá Beyoncé og Jay-Z. Við erum ekki þannig, þó þetta tíðkist um heim allan annars staðar. Og af því að fólk gerir svona verðum við reið, það er verið að ganga út yfir hin menningarlegu landamæri. Það er svo stór hluti sjálfsmyndar okkar. Að vera Íslendingur. Það er stoffið í sjálfsmyndinni. Þetta er nú bara svona almenn félagsfræði,“ segir Jón Gunnar.
Tengdar fréttir Beyonce og Jay-Z í Bláa lóninu Bandaríska ofurparið Beyoncé og Jay-Z eru eins og fram er komið á landinu. Ætla þau að halda upp á 45 ára afmæli rapparans sem hann fagnar þann 4. desember. 2. desember 2014 17:46 Beyoncé birtir fallega skýjamynd Telja aðdáendur söngkonunnar víst að Beyoncé hafi tekið myndina til að heiðra minningu Doris Rowland, móður Kelly Rowland. 3. desember 2014 19:58 „Látið þau í friði!“ Fjöldi fólks biðlar til fjölmiðla og ljósmyndara að láta hjónin Beyoncé og Jay Z í friði. 3. desember 2014 11:05 Milljónir í boði fyrir góða mynd af Beyonce og Jay Z Sannkallað æði ríkir nú meðal ljósmyndara á Íslandi en fúlgur fjár eru í boði fyrir góða mynd af hjónunum frægu meðan þau eru á Íslandi. 2. desember 2014 17:45 Mest lesið Ofboðslega stolt af dóttur sinni Lífið Klæddu sig upp sem frambjóðendur Lífið „Ef við erum lausnamiðuð þá sköpum við tækifærin“ Lífið Bannaði Snorra að kjósa Arnar Þór Lífið Myndaveisla: Rosaleg stemming í kosningavökunum Lífið „Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ Tónlist Tvöföld veisla hjá Gnarr feðgum Lífið Davíð Helgason og Isabella eignuðust dreng Lífið Krakkatían: Forsetaefni, Disney og tónlist Lífið Fékk að heyra að konur ættu ekki heima á sjó Lífið Fleiri fréttir Davíð Helgason og Isabella eignuðust dreng „Ef við erum lausnamiðuð þá sköpum við tækifærin“ Krakkatían: Forsetaefni, Disney og tónlist Klæddu sig upp sem frambjóðendur Myndaveisla: Rosaleg stemming í kosningavökunum Tvöföld veisla hjá Gnarr feðgum Ofboðslega stolt af dóttur sinni Bannaði Snorra að kjósa Arnar Þór „Nú er þessi sprettur á enda“ Kosningavökur frambjóðenda: Hvar verða mestu fagnaðarlætin? Fréttatía vikunnar: Kosningar, eldgos og meistarar Fékk að heyra að konur ættu ekki heima á sjó Segir brjóst myndast við mikla bjórdrykkju Frambjóðendum gekk misvel í hraðaspurningum Kjúklinganaggar hollu stjúpunnar Innipúkinn farinn að taka á sig mynd Sigga á Grund er fyrsti heiðursborgari Flóahrepps Af vængjum fram: Grínaðist alltaf með að láta húðflúra einstefnuskilti á rassgatið Þetta höfðu netverjar að segja um kappræðurnar Ellefu eftirtektarverð eldhús Forsetaáskorunin: Grefur upp gamlar gersemar úti um allan heim. Herra Hnetusmjör og Sara selja íbúðina Skrifuðu bók um Sólrúnu Öldu og brunann í Mávahlíð Nafn konunnar flúrað á það allra heilagasta Annar bakaradrengur í ofninum Sjáðu svartþrestina yfirgefa hreiðrið Af vængjum fram: Eins og í bíómynd þegar þau byrjuðu loksins saman Forsetaáskorunin: Áhugatöframaður og hefur safnað skeljum og eldspýtustokkum Kosningavökumolar Höllu og Bjössa Millie Bobby og Bon Jovi yngri í hnapphelduna Sjá meira
Beyonce og Jay-Z í Bláa lóninu Bandaríska ofurparið Beyoncé og Jay-Z eru eins og fram er komið á landinu. Ætla þau að halda upp á 45 ára afmæli rapparans sem hann fagnar þann 4. desember. 2. desember 2014 17:46
Beyoncé birtir fallega skýjamynd Telja aðdáendur söngkonunnar víst að Beyoncé hafi tekið myndina til að heiðra minningu Doris Rowland, móður Kelly Rowland. 3. desember 2014 19:58
„Látið þau í friði!“ Fjöldi fólks biðlar til fjölmiðla og ljósmyndara að láta hjónin Beyoncé og Jay Z í friði. 3. desember 2014 11:05
Milljónir í boði fyrir góða mynd af Beyonce og Jay Z Sannkallað æði ríkir nú meðal ljósmyndara á Íslandi en fúlgur fjár eru í boði fyrir góða mynd af hjónunum frægu meðan þau eru á Íslandi. 2. desember 2014 17:45