Fjölmiðlunarkennsla með frjálsum hugbúnaði — er það góð hugmynd? Birgir Freyr Birgisson skrifar 9. desember 2014 16:46 Fjölmargir skólar bjóða upp á fjölmiðlanámskeið þar sem nemendur fá gott tækifæri til að spreyta sig á sem flestum verkefnum tengt fjölmiðlun. Hver veit nema að næsti Helgi Seljan leynist meðal nemenda þinna? En hvað þarf í slíka kennslu? Til að byrja með þarf eflaust hæfan kennara. Nóg er til af þeim, vona ég. Svo þurfa nemendur tæki og tól til að vinna verkefnin hvort sem það er í myndbandagerð, blaðaútgáfu, tónlistarútgáfu eða á vefmiðli. Nemendur verða að hafa aðgang að tölvum og forritum til að klippa myndskeiðin í skemmtilegar fréttir eða vinna ljósmyndir og nota í tímaritið sem verið er að setja upp. Oftar en ekki eru þetta dýr leyfisskyld forrit, og greiða þarf fyrir notkunina árlega. Hugsanlega hefur skólinn einungis bolmagn til að hafa eina tölvu með viðeigandi hugbúnaði. Ekki er kostnaðarlega raunhæft að hafa forritin á mörgum tölvum og borga mörgum sinnum fyrir Adobe InDesign, Corel Draw, Photoshop, FinalCut, Quark og ProTools eða hvað sem öll þessi forrit heita. Þó svo að hægt sé að komast ansi langt á Microsoft Publisher og Movie Maker, myndum við seint telja að nemendum væri góður grunnur búinn í fjölmiðlunarvinnslu með notkun á þeim hugbúnaði eingöngu. Skólar á Íslandi þurfa að bjóða upp á besta mögulega lærdómsumhverfi fyrir nemendur og oftar en ekki hafa þeir takmarkað fjármagn að moða úr. Einnig má búast við því að tölvukostur skólans sé ekki sá allra nýjasti með öflugum fjórkjarna Intel-örgjörvum og Nvidia fjögurra „gígabæta“ súper dúper skjákorti sem hellir upp á expressó á meðan nýjasta myndskeiðið er „renderað“. Nei, sennilega er verið að spara aurinn og nýta þann vélbúnað sem skólinn hefur kost á hverju sinni. Hvað er þá hægt að gera? Ekki eru til takmarkalausir fjármunir í skólakerfinu. Hvað með allt þetta þras um frjálsan hugbúnað? Er eitthvað hægt að finna þar? Hvað með að kíkja á þetta Linux-dæmi? Skyldi Linux bjóða upp á eitthvað? Stutt leit á Google að „open source multi media software“ kemur með ýmsar áhugaverðar niðurstöður. Væri samt ekki gaman að geta fengið allt í einum pakka? Tilbúið með flottustu frjálsu fjölmiðaforritin á einum stað og þurfa ekki að fara og sækja hugbúnaðinn á marga staði og berjast við að setja forritin upp í tölvunni og hvaðeina? Bara að fá stýrikerfi með öllum pakkanum? Það er nú þegar til og heitir Ubuntu Studio, og það besta við það er að það kostar ekki krónu. Engin leyfisgjöld og það má setja það upp á eins margar tölvur og fólk vill. Ubuntu Studio er frjálst og ókeypis stýrikerfi fyrir skapandi fólk. Hvort sem markmiðið er grafísk vinna, þrívíddarteikningar, tímaritagerð, ljósmyndun, kvikmyndaklipping, upptaka á hljómplötu og útgáfa á geisladisk eða gerð næstu stóru kvikmyndarinnar þá er Ubuntu Studio með svarið. Og þar sem hugbúnaðurinn er frjáls og ókeypis er hægt að búa til fjölda afrita af stýrikerfinu og gefa nemendum. Hver og einn væri með sama hugbúnaðinn heima hjá sér. Þá koma allir að sama borði óháð fjárhag fjölskyldunnar eða félagslegra aðstæðna. Ekki hafa áhyggjur, það þarf ekki að henda út Windows-stýrikerfinu sem kom með tölvunni. Hægt er að setja Ubuntu Studio upp á tölvur samhliða Windows-stýrikerfi. Þegar kveikt er á tölvunni velur notandinn hvort hann ætlar í Ubuntu Studio eða Windows. Ubuntu Studio virkar einnig vel á eldri vélbúnað, í það minnsta keyrir Ubuntu Studio eins og ekkert sé á 7 ára gömlu Asus-fartölvunni minni. Það eina sem ég þurfti að gera var að sækja Ubuntu Studio af vefsíðu þeirra, www.ubuntustudio.org, skrifa Iso-skjalið á DVD-disk og endurræsa vélina með diskinn í geisladrifinu. Rúmlega hálftíma seinna var tölvan tilbúin með Ubuntu Studio ásamt öllum nauðsynlegum margmiðlunarforritum. Nú hefur sennilega einhver spurt sig: ,,Gæti notkun á frjálsum hugbúnaði ekki gert nemendum erfitt að læra á (dýr) leyfisskyld margmiðlunarforrit sem fyrirtæki nota?“ Svarið við þessari spurningu er þvert á móti. Frjáls hugbúnaður gefur nemendum góðan grunn sem byggja má ofan á þar sem vinnuferlið er sambærilegt við leyfisskyld forrit. Svo eru fjölmörg fyrirtæki sem nota eingöngu frjálsan hugbúnað í sinni sköpun. Farðu á www.birgir.org og sjáðu hvaða fyrirtæki vinna að sköpun með frjálsum hugbúnaði og hvað hægt er að gera. Já, kæri lesandi, ekki er þörf á að bíða eftir viðeigandi fjárveitingu frá ríkinu eða samþykki þeirra sem halda utan um budduna hjá sveitarfélaginu. Hægt er að efla fjölmiðlakennslu í skólum landsins strax í dag. Það eina sem þarf að gera er að setja upp Ubuntu Studio og byrja að vinna. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Við þurfum ekki að loka landinu – við þurfum að opna augun Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir Skoðun Svona eða hinsegin, hvert okkar verður næst? Unnar Geir Unnarsson Skoðun Ákall til íslenskra stjórnmálamanna Magnús Árni Skjöld Magnússon Skoðun Þurfum við virkilega „leyniþjónustu”? Helen Olafsdóttir Skoðun Byrjað á öfugum enda! Hjálmar Heiðdal Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðsla vegna umsóknar um aðild að ESB er stjórnsýslugrín! Júlíus Valsson Skoðun Að hlúa að foreldrum: Forvörn sem skiptir máli Áróra Huld Bjarnadóttir Skoðun Plan Samfylkingar: Svona náum við niður vöxtunum Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Reynisfjara og mannréttindasáttmáli Evrópu Róbert R. Spanó Skoðun Öruggari Reykjavík Svala Hjörleifsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Við þurfum ekki að loka landinu – við þurfum að opna augun Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Svona eða hinsegin, hvert okkar verður næst? Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Reynisfjara og mannréttindasáttmáli Evrópu Róbert R. Spanó skrifar Skoðun Að hlúa að foreldrum: Forvörn sem skiptir máli Áróra Huld Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ákall til íslenskra stjórnmálamanna Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Þurfum við virkilega „leyniþjónustu”? Helen Olafsdóttir skrifar Skoðun Byrjað á öfugum enda! Hjálmar Heiðdal skrifar Skoðun Væri ekki hlaupið út aftur Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Gervigreind fyrir alla — en fyrir hvern í raun? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hefur ítrekað hótað okkur áður Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðsla vegna umsóknar um aðild að ESB er stjórnsýslugrín! Júlíus Valsson skrifar Skoðun Bandaríkin voru alltaf vondi kallinn Karl Héðinn Kristjánsson skrifar Skoðun Erum við á leiðinni í hnífavesti? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Ákall til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að standa við gefin loforð Laura Sólveig Lefort Scheefer,Snorri Hallgrímsson,Sigurlaug Eir Beck Þórsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Ida Karólína Harris,Antonia Hamann,Julien Nayet-Pelletier skrifar Skoðun Kæfandi klámhögg sveitarstjóra Jón Trausti Reynisson skrifar Skoðun Klár fyrir Verslunarmannahelgina? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Vegið að börnum í pólitískri aðför að ferðaþjónustunni Einar Freyr Elínarson skrifar Skoðun Hið tæra illa Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Ferðamannaiðnaður? Nei, ferðaþjónusta! Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Hæðarveiki og lyf Ari Trausti Guðmundsson skrifar Skoðun Landsvirkjun hafin yfir lög Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Fjárskipti við slit óvígðrar sambúðar: Meginreglur og frávik Sveinn Ævar Sveinsson skrifar Skoðun Þau eru framtíðin – en fá ekki að njóta nútímans Sigurður Kári skrifar Skoðun Greiðsla með Vísakorti tryggir ekki endurgreiðslu – forfallatryggingar gagnslausar þegar mest á reynir Erna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna þegir kristin, vestræn menning? Ómar Torfason skrifar Skoðun Trump les tölvupóstinn þinn Mörður Áslaugarson skrifar Skoðun „Já, hvað með bara að skjóta hann!“ Þórhildur Hjaltadóttir skrifar Skoðun Heimar sem þurfa nýja umræðu! Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sársauki annarra og samúðarþreyta Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Í minningu sonar – og allra þeirra sem aldrei komu heim Kristín Dýrfjörð,Friðrik Þór Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að loka landinu – við þurfum að opna augun Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðsla vegna umsóknar um aðild að ESB er stjórnsýslugrín! Júlíus Valsson skrifar
Skoðun Ákall til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að standa við gefin loforð Laura Sólveig Lefort Scheefer,Snorri Hallgrímsson,Sigurlaug Eir Beck Þórsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Ida Karólína Harris,Antonia Hamann,Julien Nayet-Pelletier skrifar
Skoðun Fjárskipti við slit óvígðrar sambúðar: Meginreglur og frávik Sveinn Ævar Sveinsson skrifar
Skoðun Greiðsla með Vísakorti tryggir ekki endurgreiðslu – forfallatryggingar gagnslausar þegar mest á reynir Erna Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Í minningu sonar – og allra þeirra sem aldrei komu heim Kristín Dýrfjörð,Friðrik Þór Guðmundsson skrifar