Ísland verður með á HM í Katar | Ísland og Sádí-Arabía fá lausu sætin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. nóvember 2014 18:20 Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði íslenska handboltalandsliðsins. Vísir/Stefán
Íslenska handboltalandsliðið verður með á HM í handbolta í Katar í janúar eftir allt saman en þessi óvænta ákvörðun var tekin á fundi Framkvæmdastjórnar IHF í Þýskalandi í dag samkvæmt óstaðfestum heimildum íþróttadeildar 365 . Íslenska landsliðið fær sæti í C-riðli með Svíum og Frökkum. Barein og Sameinuðu arabísku furstadæmunum höfðu afsalað sér sætum sínum fyrr í þessum mánuði vegna pólískra ástæðna en þau vildu síðan bæði fá sætin aftur í þessari viku. Íslenska liðið tekur sæti Sameinuðu arabísku furstadæmanna í C-riðlinum. Flestir bjuggust við því að Alþjóðahandboltasambandið tæki þjóðirnar inn aftur en báðar höfðu tryggt sér sín sæti upprunalega í gegnum undankeppnina í Asíu. Framkvæmdastjórn IHF sættist hinsvegar ekki á endurkomu Barein og Furstadæmanna og ákvað frekar að bjóða Evrópu og Asíu lausu sætin á HM í Katar í byrjun næsta árs. Handknattleikssamband Evrópu og Handknattleikssamband Asíu fengu í framhaldinu að velja sína þjóð og Ísland fékk sæti Evrópu. Ísland var fyrsta varaþjóð Evrópu en IHF hafði þegar gengið framhjá íslenska landsliðinu þegar Þjóðverjar fengu að taka sæti Ástrala sem misstu sætið sitt í júlímánuði síðastliðnum. Samkvæmt sömu viðmiðum stjórnar IHF hefðu Serbar og Ungverjar átt að taka sæti Barein og Sameinuðu arabísku furstadæmanna en ekki Ísland. Óvissan í kringum vinnuaðferðir IHF hélt þó mönnum á tánum fram á síðustu stundu og eftir langan og strangan fund bárust fréttir um það að íslenska handboltalandsliðið verði með á HM í Katar sem fer fram frá 15. janúar til 1. febrúar 2015 næstkomandi. Ísland verður í C-riðli með Frakklandi, Svíþjóð, Alsír, Tékklandi og Egyptalandi. Fyrsti leikur Íslands verður á móti Svíum 16. janúar.
Handbolti Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira