Yfir hverju eru þessir læknar að kvarta? Hanna Björg Egilsdóttir skrifar 6. nóvember 2014 22:26 Ertu búin/n að lesa þessa frétt á MBL? Upplýsir ekki um heildarlaun Þetta er nú meiri frekjan í þessum læknum. Vilja fá há laun fyrir 100% dagvinnu þegar þeir geta auðveldlega tekið að sér aukavinnu, eins og við hin, til að hækka laun sín. Vita þeir ekki að kreppan hefur áhrif á alla? Líka lækna!Þeir fá allt of mikla vinnu! Ég meina, hér eru allir þessir læknar sem hafa örugga vinnu (annað en margir aðrir) og FÁ jafnvel að vinna langt umfram umsaminn vinnutíma. Svo í þokkabót fá þeir að eyða frítíma sínum í það að ferðast um allt land, og jafnvel heiminn, oftast barn- og makalausir og hitta fullt af allskonar fólki? -Og fá borgað fyrir það (gegn því að taka nokkrar sólarhringsvaktir á viku, á sjúkrahúsum þeirra bæja sem þeir heimsækja). Yfir hverju eru þessir læknar eiginlega að kvarta? Þeir geta bara verið þakklátir fyrir að hafa vinnu yfir höfuð. Nóg af henni meira að segja. Það er fullt af fólki sem er atvinnulaust og hefur það miklu verra!Þeir hafa ekki tíma fyrir fjölskylduna! Tími með fjölskyldunni er algjörlega ofmetinn og kemur launakjörum ekkert við. Sjómennskan hefur einmitt lengi verið eftirsótt atvinnugrein eingöngu sökum öfundsverðs vinnutíma. Við Íslendingar vitum mæta vel að vinnan göfgar manninn og við kærum okkur almennt ekki um að vera sóa tíma í t.d. bekkjarkvöld, jólaskemmtanir, danssýningar og göngutúra með börnunum okkar. Hvað þá að hanga heima til að ala þau upp... ég meina til hvers eru þessir skólar og leikskólar eiginlega?Þeir kláruðu svo erfitt háskólanám! Talandi um skóla. Við skulum hafa það alveg á hreinu að háskólanám er enginn trygging fyrir háum launum! Ég er alveg viss um að það er hægt að stytta þetta nám töluvert (ef það þarf eitthvað sérstakt nám til að læra að verða læknir, svona yfir höfuð). Sex ár bara í grunnnámi? Eru ekki inngöngupróf í læknisfræði? Þarf að eyða fyrstu tveimur árunum í að kenna þeim að lesa eða? Eru þeir svo ekki allir með nettengdar tölvur þegar þeir fara að vinna? Hafiði heyrt um Google? Það er ekki eins og það þurfi að kenna þeim allt áður en þeir fara að vinna! Um daginn fékk sonur minn útbrot, sem ég bara gúglaði og fann lausn á. Fann örugglega sjö þræði á Barnalandi um einmitt samskonar útbrot. Það getur ekki þurft meira en svona 3-4 ár til að undirbúa sig fyrir að verða læknir. Svo er ekki eins og að allir þurfi að verða einhverjir sérfræðingar og sóa enn meiri tíma í það.Þeir eru svoooo þreyttir! Auðvitað ættu læknar alveg að geta unnið vinnuna sína þó þeir séu stundum þreyttir - bara rétt eins og annað fólk. Það er ekki eins og það sé eitthvað meira í húfi ef þeir gera mistök en aðrir. Ég var einu sinni að vinna vaktavinnu í búð... ótrúlega langar vaktir marga daga í röð. Það var rosa erfitt, og kúnnarnir voru brjálaðir ef ég gaf þeim vitlaust til baka. Einu sinni gaf ég konu vitlaust tilbaka og daginn eftir þegar hún kom aftur í búðina átti hún ekki fyrir bæði Lion Bar og kók. Ég var með móral í viku! Þar fyrir utan eru þessir læknar búnir að sýna fram á það síðustu ár að þeir ráða alveg við það álag sem þeir eru allt í einu núna farnir að kvarta yfir. Það er pottþétt einhver spilling á bak við þetta.Hingað og ekki lengra! Vinur minn er strætóbílstjóri hjá Strætó Bs. og var hundfúll vegna kjara sinna þar. Vitiði hvað hann gerði? Hann fór bara að vinna hjá Flybus þegar hann var ekki á vakt hjá Strætó, FÉKK meira að segja næturvaktir fjóra daga í viku. Pælið í því! Allt í einu þrefölduðust heildar-mánaðarlaunin hans og auk þess slapp hann við allt þetta leiðinlega heima hjá sér... uppvask, þrífa bílinn, hlýða börnunum sínum yfir heimalærdóm og meira að segja að hlusta á nöldrið í manninum sínum. Ýkt heppinn gaur, og dytti ekki í hug að fara að kvarta og væla!P.s. Ég styð íslenska lækna 100% í kjarabaráttu sinni og meina ekki stakt orð í færslunni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson skrifar Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Dauði eða ofsakvíði? Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjaldið: aukin skattheimta á þá sem minna mega sín? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson skrifar Skoðun Sjálfsmynd þjóðar Steinar Harðarson skrifar Skoðun Viltu ná niður þinni eigin verðbólgu? Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvenær hætta börn að rétta upp hönd? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar hljóð og mynd fara ekki saman Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Beiting helmingaskiptareglunnar við fjárskipti hjóna Sveinn Ævar Sveinsson skrifar Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson skrifar Skoðun Tækifæri til að lækka verðbólgu Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Eins gott að þjóðin viti ekki of mikið Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Sterkari saman og til þjónustu reiðubúin Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Hver heldur á fjarstýringunni í íslensku samfélagi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvar býrðu? Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Ísland selur sig ekki sjálft – og óvissa selur ekkert Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Föstudagurinn langi spyr: stöndum við með týndu börnunum okkar? Steinþór Þórarinsson skrifar Skoðun Lágir skattar og góð þjónusta fara saman í Kópavogi Guðmundur Jóhann Jónsson skrifar Skoðun Píeta samtökin 10 ára – samstaða um von Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Markaðsöflin græða meðan börnin tapa Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar