Telja það með öllu óásættanlegt að stjórnvöld afhendi fjölmiðlum upplýsingar Stefán Árni Pálsson skrifar 16. október 2014 15:44 Vísir/GVA
Vegna frétta síðustu daga um ætlað samráð á flutningamarkaði hefur Samskip sent frá sér yfirlýsingu en Samkeppniseftirlitið hefur kært ellefu starfsmenn Samskipa og Eimskipa til sérstaks saksóknara fyrir stórfelld brot á samkeppnislögum. Í tilkynningunni segir að félagið starfi af heilindum á markaði þar sem ríkir virk samkeppni. Það sé skoðun Samskipa að skýr samkeppnislög og skilvirkt eftirlit séu nauðsynleg til að tryggja heilbrigt atvinnulíf. „Starfsemi Samskipa hefur ávallt grundvallast á samkeppni á öllum mörkuðum og félagið hefur verið leiðandi í að skapa virka samkeppni. Samskip hafa verið óhrædd við að benda eftirlitsaðilum á þegar félagið telur að keppinautar á markaði fari ekki að lögum. Ábendingar okkar til Samkeppniseftirlitsins hafa m.a. leitt til sektargreiðslna eins af samkeppnisaðilum okkar.“ Í tilkynningunni segir að eftirlitsaðilar gegni ábyrgðarmiklu hlutverki og heimildir þeirra til rannsókna séu afar víðtækar. „Því er það sjálfsögð og eðlileg krafa að trúnaður ríki um gögn sem aflað er með jafn inngripsmikilli aðgerð og húsleit, með dómsúrskurði, á meðan mál eru til rannsóknar. Sá trúnaður er ekki til staðar og gögnum hefur verið komið til fjölmiðla um mál sem ekki er búið að ákveða hvort tekið verður til rannsóknar, hvað þá að ákærur hafi verið gefnar út.“ Forsvarsmenn Samskipa telja það með öllu óásættanlegt að stjórnvöld (Samkeppniseftirlitið eða Sérstakur saksóknari) afhendi fjölmiðlum upplýsingar þar sem bornar séu á aðila alvarlegar sakir, sem hlutaðeigandi einstaklingar og fyrirtæki hafa ekki verið upplýstir um og hafa enga möguleika á að svara fyrir sig eða bera hönd fyrir höfuð sér með neinum hætti. „Það er vægast sagt undarlegt að vera leiksoppur í því sem virðist vera barátta ríkisstofnana fyrir tilvist sinni og/eða auknum fjárveitingum og gersamlega óásættanlegt að orðspori, mannorði og sjálfsögðum mannréttindum sé ýtt til hliðar fyrir slíka hagsmuni.“ Hjá Samskipum starfa yfir 500 manns. „Starfsfólkið og fjölskyldur þeirra þurfa að sitja undir órökstuddum dylgjum um mál sem enn er til skoðunar. Í gær sendi Samkeppniseftirlitið frá sér fréttatilkynningu þar sem segir að eftirlitið sé „ekki reiðubúið að staðfesta þá umfjöllun sem fram kom í Kastljósi í gærkvöldi. Þá skal sérstaklega tekið fram að rannsókn málsins er ekki komin á það stig að unnt sé að slá neinu föstu um niðurstöður hennar.“ Rétt er því að varast að fella dóm í málinu en bíða eftir því að niðurstaða liggi fyrir. Samskip hafa ekkert að fela og treysta því að niðurstaða skoðunar Samkeppniseftirlitsins og Sérstaks saksóknara sýni það.“ Í tilkynningunni segir að fyrirtækið viti að ábyrgð þess sé mikil og eru forsvarsmenn Samskipa meðvitaðir um þær skyldur sem þeir bera gagnvart viðskiptavinum þeirra og þá um leið almenningi í landinu. „Starfsfólk Samskipa hefur unnið ötullega og eftir bestu samvisku að því að stuðla að virkri samkeppni og aukinni hagsæld á Íslandi með því að bjóða viðskiptavinum sínum hagkvæmar lausnir í flutningum og flutningatengdri þjónustu atvinnulífinu í landinu og samfélaginu öllu til heilla.“
Samkeppnismál Ólöglegt samráð Eimskips og Samskipa Skipaflutningar Eimskip Fjölmiðlar Lögreglumál Tengdar fréttir Kærð fyrir samkeppnislagabrot Samkeppniseftirlitið hefur kært ellefu starfsmenn Samskipa og Eimskipa til sérstaks saksóknara fyrir stórfelld brot á samkeppnislögum. 14. október 2014 22:10 Eimskip og Samskip hafna ásökunum um samkeppnisbrot Vegna umfjöllunar RÚV í gær, 14. október, vilja Samskip og Eimskip koma því á framfæri að félögin vísa bæði á bug þeim ásökunum um samkeppnisbrot sem þar komu fram. 15. október 2014 11:11 Mest lesið Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia Sjá meira
Kærð fyrir samkeppnislagabrot Samkeppniseftirlitið hefur kært ellefu starfsmenn Samskipa og Eimskipa til sérstaks saksóknara fyrir stórfelld brot á samkeppnislögum. 14. október 2014 22:10
Eimskip og Samskip hafna ásökunum um samkeppnisbrot Vegna umfjöllunar RÚV í gær, 14. október, vilja Samskip og Eimskip koma því á framfæri að félögin vísa bæði á bug þeim ásökunum um samkeppnisbrot sem þar komu fram. 15. október 2014 11:11