Þingmaður segir dagskrá Ríkisútvarpsins misþyrmt Aðalsteinn Kjartansson skrifar 23. september 2014 14:20 "Ég spyr því hér og nú og velti fyrir mér hvort að þessi stofnun mun halda áfram að misþyrma dagskránni?“ spurði Vilhjálmur. Vísir / Stefán
Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að dagskrá Ríkisútvarpsins hafi verið misþyrmt að undanförnu. Vísaði hann til þeirra breytinga sem gerðar hafa verið á dagskránni í kjölfar ráðningar nýrra dagskrárstjóra. „Það er ýmislegt sem valdið hefur truflunum á lífi mínu á undanförnum misserum,“ sagði Vilhjálmur þegar hann hóf ræðu sína um dagskrárbreytingarnar. „Það er nú svo komið að Ríkisútvarpið taldi það að það gæti helst orðið þjóðinni til bóta að fella niður hugleiðingu að morgni sem ég veit ekki að hafi unnið nokkrum manni sálutjón,“ sagði hann í ræðunni og bætti við að næst hafi síðasta lag fyrir fréttir verið fært framfyrir tilkynningar. „Þannig að það kemur ýmislegt á eftir, leiknar auglýsingar, sem misþyrma síðasta lagi fyrir fréttir,“ sagði hann. „Ég spyr hér og nú: Hvaða vanda hefur síðasta lag fyrir fréttir klukkan fyrir 17 mínútur yfir tólf valdið þjóðinni?“ spurði þingmaðurinn og hélt áfram: „Ég spyr því hér og nú og velti fyrir mér hvort að þessi stofnun mun halda áfram að misþyrma dagskránni?“ Vilhjálmur gerði spilun Níundu sinfóníu Beethovens að sérstöku umtalsefni í þessu samhengi en hún hefur verið flutt á á nýársdagsmorgun. „Hún hefur valdið mér ómældri gleði og vakið mér vonir um gott nýtt ár,“ sagði hann og baðst vægðar fyrir hönd hlustenda útvarpsins. „Ég bið um það að það sé ekki verið að skaka í dagskrárliðum sem hafa unnið sér sess í langri dagskrá útvarpsins og hingað og ekki lengra.“
Alþingi Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Fleiri fréttir 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Sjá meira