Stríð innan Skálmaldar: Lætur kambinn fjúka Gunnar Leó Pálsson skrifar 21. ágúst 2014 13:22 Gunnar Ben, lengst til vinstri á myndinni er efstur sem stendur. Mynd/Lalli Sig „
Það er stríð innan sveitarinnar og mikil keppni en menn er þó misvirkir í henni,“ segir Gunnar Ben, hljómborðsleikari Skálmaldar en hann er sem stendur efstur Skálmaldarmeðlima í áheitasöfnuninni fyrir Reykjavíkurmaraþonið á laugardag. Hinir geysivinsælu og geðþekku rokkarar í Skálmöld verða fulltrúar Íslandsbanka í Reykjavíkurmaraþoninu í ár. „Ég ætla fórna kambinum ef ég næ þrjú hundruð þúsund krónum fyrir hádegi á morgun. Ég var í 161.000 krónum á hádeginu í dag og ég ætlaði að lita kambinn bleikan ef ég færi í 250.000 krónur, en það gerðist ekki neitt, þannig að fólk vill greinilega ekki bleikan kamb,“ segir Gunni Ben en hann ætlar að fórna sínum fræga kambi ef hann nær að safna þrjú hundruð þúsund krónum fyrir hádegi á morgun. „Það hefur engin tónlistarleg áhrif að missa kambinn en ég hef verið lengur með hann heldur en ég hef verið í Skálmöld,“ segir Gunni Ben spurður út í mikilvægi kambsins. Hann er sem stendur efstur af meðlimum sveitarinnar. „Þráinn er að sækja á mig hægt og rólega en ég hef fulla trú á að ég vinni þetta,“ segir Gunni Ben og hlær. Hann segir tilhlökkunina mikla fyrir maraþonhlaupið. „Það er alvega merkilega lítill kvíði hjá okkur miðað við stemninguna í upphafi. Mér finnst ég bara nokkuð tilbúinn í þetta og ég er allavega hættur að hafa áhyggjur af því að komast ekki í mark.“ Þeir sem vilja sjá kambinn fjúka geta styrkt Gunna Ben hér. Maraþonmennirnir: Skálmöld from Íslandsbanki on Vimeo.
Mest lesið Steinn Ármann er látinn Lífið Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Lífið Kjóllinn brann korter í brúðkaup Lífið „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Lífið Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Lífið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Lífið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Leikkonan Bunny Levine er látin Lífið Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Lífið Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Lífið Fleiri fréttir Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Svona verður dagskráin á Menningarnótt Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sjá meira