Rökrétt niðurstaða að mati Viðskiptaráðs Haraldur Guðmundsson skrifar 28. ágúst 2014 10:24 Björn Brynjúlfur Björnsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands. „
Við fyrstu sýn sjáum við ekki betur en að þetta sé rökrétt niðurstaða en þrátt fyrir það geta einstakir skilmálar verið brot á íslenskum lögum og því þurfa dómstólar hér að skera úr um það. Auk þess er seinna málið fyrir EFTA-dómstólnum óafgreitt en þar geta lán sem voru veitt með greiðsluáætlunum sem gerðu ráð fyrir engri verðbólgu, verið dæmd ólögmæt,“ segir Björn Brynjúlfur Björnsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands, um niðurstöðu EFTA-dómstólsins. Í morgun kynnti dómstóllinn niðurstöðu sína um að tilskipun Evrópusambandsins um neytendalán leggi ekki almennt bann við skilmálum um verðtryggingu neytendalána í samningum milli veitenda og neytenda. Dómstóllin segir þar að það sé íslenskra dómstóla að taka afstöðu til skilmála verðtryggingarinnar og hvort hún sú óréttmæt. „Það er mikilvægt að málinu ljúki hjá Hæstarétti sem fyrst því umfang skuldabréfamarkaðarins hérlendis er gríðarlegt. Hann er í kringum ein landsframleiðsla og þar af eru þrír fjórðu verðtryggðir. Við leggjum því mikla áherslu á að það komi endanleg niðurstaða í þetta fyrir íslenskum dómstólum,“ segir Björn og heldur áfram: „En okkur fannst þetta vera í takt við málavexti og finnst í rauninni jákvætt að það sé ekki tekið fyrir hendurnar á okkur og að við höfum sjálfdæmi í þessu máli." Seinna málið sem Björn vísar til varðar mál sem Sævar Jón Gunnarsson höfðaði gegn Landsbankanum vegna 630 þúsunda króna verðtryggðs láns. Í því er spurt um réttmæti þess að miða við 0 prósent verðbólgu í lánasamningum og mun EFTA-dómstólinn gefa ráðgefandi álit sitt í málinu síðar í haust.
Mest lesið Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Viðskipti innlent Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Viðskipti innlent Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Viðskipti innlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Viðskipti innlent Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ Atvinnulíf Fjárfestingabylgja í íslensku fiskeldi Viðskipti innlent Engin uppgjöf á Djúpavogi og fiskvinnslan endurreist Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Sjá meira