Innlent

Bakteríur fundust í tveimur réttum á Dalvík

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá Fiskideginum
Frá Fiskideginum Vísir/Auðunn
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra fann tvenns konar frávik í matvælum við rannsókn á matareitrun sem gestir Fiskidaga á Dalvík fengu fyrir helgi. Annars vegar fundust grómyndandi bakteríur, sem að geta framleitt hitaþolið eiturefni. Hins vegar stafýlókokkar sem einnig geta framleitt hitaþolið eitur.

„Þetta eru þannig niðurstöður að við teljum nokkuð ljóst að þessi frávik hafi valdið þessum einkennum hjá því fólki sem borðaði matinn,“ segir Alfred Schiöth hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra. Um þrjátíu manns leituðu á heilsugæslu vegna sýkingar.

Alfred segir að almennt séð tengist grómyndandi bakteríur því þegar kæling matvæla er ekki nægilega ör, þ.e. að þau kælist ekki nægilega hratt. Hins vegar tengist stafýlókokkar bakteríu sem geti verið á húð og í hálsi og geti borist í matvæli með til dæmis snertingu, hnerra og hósta og fjölgi sér, sé hitastigið of hátt.

„Við sjáum það úr þessum niðurstöðum að kælikeðjan hefur brugðist og þess utan hafi eitthvað farið úrskeiðis varðandi meðhöndlun matvælanna.“

Hann segir aðalmálið vera að kælingin sé snögg eftir hitameðferð. Ef verið sé að breyta heitum mat í kaldan gerist það hratt og ákveðið. Þá haldist matvælin köld þar til þeirra er neytt eða þá matvælunum sé haldið yfir 60 gráðum svo bakteríur geti ekki fjölgað sér.

„Við þykjumst sjá að tvennt hafi farið úrskeiðis. Annars vegar að kælingin hafi ekki verið nægjanlega ör og samfelld. Hins vegar hafi einhverskonar mengun borist frá fólki sem vann með matvælin.“

Alfred segir um tvær algengustu ástæður fyrir matareitrunum og sýkingum að ræða.

Um var að ræða einstakt tilvik þar sem búið var að leigja eldhús Grunnskólans á Dalvík. Þar var matreiddur tælenskur matur fyrir gesti á Dalvík þar sem fjölmennt var um liðna helgi þegar Fiskidagurinn mikli fór fram. Ekki er um að ræða rekstur veitingahúss.

Framleiðsla og sala matarins var stöðvuð á staðnum eftir að ábendingar bárust um veikindi.

„Aðalatriðið er að draga lærdóm af þessu. Að allir sem séu að hugsa á þessum nótum hafi öflug kæliúrræði í huga þegar efnt skal til stórveislu. Einnig allt sem lýtur að verklagi og þrifum varðandi matreiðslu,“ segir Alfred.

Uppfært klukkan 15:40

Í fréttinni stóð áður að bakteríur hefðu fundist í tveimur réttum á Fiskideginum mikla sem fram fór laugardaginn 9. ágúst. Hið rétta er að bakteríur fundust í réttum sem eldaðir voru fyrir Fiskidagsgesti á miðvikudeginum, þ.e. í aðdraganda Fiskidagsins mikla.


Tengdar fréttir

Mikil gleði á Dalvík

Margir þekktir Íslendingar lögðu leið sína til Dalvíkur um síðustu helgi og skemmtu sér í hinum ýmsu garðpartíum.

Öllu tjaldað til á Dalvík

Mikil tónlistarveisla fer fram á Dalvík á laugardagskvöldið þar sem landsþekktir tónlistarmenn stíga á svið og fara um víðan völl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×