Körfubolti

Ein skærasta stjarna íslenska körfuboltans heimsótt á Hagamelinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Valtýr Björn Valtýsson var með umfjöllun um Martin Hermannsson og fjölskyldu hans í kvöldfréttum Stöðvar tvö en þessi 19  ára strákur er í aðalhlutverki hjá íslenska landsliðinu í körfubolta í undankeppni EM.

Martin skoraði 22 stig í sigrinum á Bretum í fyrsta leik undankeppninnar og var kosinn besti  leikmaður tímabilsins í Dominos-deildinni síðasta vetur. Hann mun síðan spila með LIU Brooklyn  í bandaríska háskólaboltanum næsta vetur.

Valtýr Björn hitti Martin og fjölskyldu hans þar sem þau búa á Hagamelnum í Reykjavík en þetta  er mikil íþróttafjölskylda.

Valtýr Björn spurði Martin meðal annars út í draumana um að spila í NBA-deildinni og heyrði  síðan einnig hljóðið í öðrum fjölskyldumeðlimum.

„Hann er allt öðruvísi leikmaður og ég myndi halda að hann væri miklu betur þjálfaður eins og  þessir strákar eru í dag. Það er miklu meiri snerpa, hraði og tækni í þessu í dag. Hann er  samt ekki betri það er langt í frá. Ég myndi aldrei viðurkenna að hann væri betri sem hann  er," sagði Hermann Hauksson, faðir Martins, um muninn á þeim feðgum.

„Ætli ég vilji ekki frekar vera eins og Martin af því að hann er betri en pabbi," segir Arnór  Hermannsson sextán ára bróðir Martins um hvorum hann vilji líkjast meira. En á Margrét  Elíasdóttir, móðir Martins, ekkert í Martin?

„Jú, jú. Ég hugsa að hann fái eljuna og keppnisskapið frá mér," segir Margrét. "og  hlaupagetuna," skýtur Hermann inn í. En er Martin tapsár?

„Hann hefur alltaf verið svakalega tapsár en þeir hafa báðir verið með serkum liðum hjá KR og  haf því ekki oft tapað," segir Margrét.

Hermann skipti sjálfur á sínum tíma úr KR og spilaði með Njarðvíkurliðinu. Gæti Martin hugsað  sér að spila fyrir annað félag hér heima en KR? „Þegar ég var yngri þá var ég viss um að ég  færi í eitthvað annað lið en eftir að maður hefur orðið Íslandsmeistari með KR þá sér maður sig ekki fara neitt annað," sagði Martin.

Það má sjá allt innslagið með því að smella á myndbandið hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×