Tekur Dagur við Þjóðverjum? Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. ágúst 2014 12:59 Dagur Sigurðsson þykir líklegur til að taka við þýska landsliðinu. Vísir/Getty
Þýska tímaritið Der Spiegel greinir frá því að Dagur Sigurðsson, þjálfari Füsche Berlin, verði næsti landsliðsþjálfari Þýskalands. Hann tekur við starfinu af Martin Heuberger sem var látinn taka pokann sinn þegar ljóst var að Þjóðverja næðu ekki að tryggja sig inn á HM í Katar á næsta ári, en sem kunnugt er fengu Þjóðverjar síðan farseðilinn inn á heimsmeistaramótið í boði Alþjóðahandknattleikssambandsins á kostnað Ástralíu. Fréttastofan hefur í dag ítrekað reynt að ná tali af umboðsmanni Dags, Wolfgang Gütschow, en án árangurs. Hvorki Dagur né umboðsmaður hans vildu staðfesta fréttina við Der Spiegel, en ef satt reynist verður Dagur fyrsti útlendingurinn sem tekur við þýska landsliðinu. Þetta stríðir gegn þeirri hugmyndafræði sem Þjóðverjar hafa unnið eftir á síðustu árum, en fyrrum landsliðsþjálfari Þýskalands, Heiner Brand, sem gerði liðið að heimsmeisturum 2007 og Evrópumeisturum 2004, hefur barist gegn því með kjafti og klóm að erlendur þjálfari yrði ráðinn til starfans. Brand er goðsögn í Þýskalandi, en hann leiddi Þjóðverja til heimsmeistaratitils í Bröndby-höllinni í Kaupmannahöfn árið 1978 þegar Vestur-Þjóðverjar lögðu Sovétmenn að velli. Það virðist því vera að gamla handboltaelítan hafi tapað baráttunni, en framkvæmdarstjóri Füsche Berlin, Bob Hanning, sem einnig er varaformaður þýska handknattleikssambandsins, er maðurinn leitt hefur leitina að nýjum landsliðsþjálfara. Meira um málið í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.
Handbolti Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Náði loksins titlinum sem hana dreymdi um Golf Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti HM-minning: Fékk ekki þrennuna sína fyrr en þrjátíu árum eftir dauða sinn Fótbolti Fleiri fréttir Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sjá meira