Lífið

Katie Holmes vildi leika Piper í Orange is the new black

Kristjana Arnarsdóttir skrifar
Hefði Katie verið góð í hlutverki fangans Piper?
Hefði Katie verið góð í hlutverki fangans Piper?
Katie Holmes var nálægt því að landa aðalhlutverkinu í sjónvarpsþáttaseríunni Orange is the New Black sem slegið hefur í gegn víða um heim.

Höfundur þáttanna, Jenji Kohan, leitaði til Katie fyrir hlutverk Piper Chapman en leikkonan var á kafi í öðrum verkefnum og gat því ekki tekið hlutverkið að sér. Í staðinn féll hlutverkið í skaut Taylor Schilling.

Þrátt fyrir að Katie hafi hafnað aðalhlutverkinu vonast framleiðsluteymið eftir því að leikkonan samþykki að koma fram í gestahlutverki síðar.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.