Íslenskur söngleikur settur upp í New York Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 1. ágúst 2014 10:00 Bergur Þór Ingólfsson og Ívar Páll Jónsson standa hér fyrir framan leikhúsið þar sem töfrarnir gerast. Mynd/Úr einkasafni
Ívar Páll Jónsson, tónsmiður, ræðst ekki á garðinn sem hann er lægstur en hans fyrsti söngleikur verður frumsýndur þann 13. ágúst næstkomandi í Minetta Lane Theater í New York borg. „Það er smá stress að hreiðra um sig núna. Maður er svolítið að leggja sjálfan sig á borðið. Þetta er allt samið af mér. Minn húmor. Minn andhúmor. Mín tónlist. Mitt handrit,“ sagði Ívar Páll þegar Fréttablaðið náði af honum tali. Söngleikur ber nafnið „Revolution in the elbow of Ragnar Agnarsson furniture painter“ eða Bylting í olnboga húsgagnamálarans Ragnars Aðalsteinssonar. „Þetta er saga um ást, blekkingu og þegar fólk týnir sér í einhverjum óraunveruleika.“ Eins og titill verksins ber með sér verður bylting í sögunni sem líkja má við hrunið á Íslandi. „Fólk býr í einhverjum sýndarveruleika þar sem raunveruleikinn bankar upp á.“ Vinnan á bakvið verkið hófst árið 2011. Þá fyrst fór Ívar að semja beinagrind að söngleik og lög inn í þar sem við átti.„A Completely Surreal Icelandic Musical Has One of the Best Soundtracks of the Year“ „Það var strategískt hjá mér að hafa tónlistina á sem frambærilegustu formi svo hún myndi toga verkið áfram,“ útskýrir Ívar. Hann fékk Stefán Örn Gunnlaugsson, tónlistarstjóra sýningarinnar, snemma í lið með sér og saman tóku þeir upp lögin. „Hann á mikinn heiður af því hversu vel tónlistin heppnaðist.“ Það eru engar ýkjur hjá Ívari en verkið er strax farið að vekja athygli erlendis fyrir tónlistina. Í New York Village Voice birtist á miðvikudag grein um verkið sem ber titillinn: „A Completely Surreal Icelandic Musical Has One of the Best Soundtracks of the Year“ eða „Algjörlega súrrealískur íslenskur söngleikur geymir eina bestu tónlist ársins.“ Snemma á síðasta ári funduðu Ívar og Stefán með Óskari Eiríkssyni hjá Theater Mogul sem féllst á að taka verkið að sér. Verkið hefur því verið lengi í fæðingu og er ekki tilbúið enn. „Þetta verður ekki fullbúið fyrr en á frumsýningu,“ segir Ívar sem hefur unnið í handritinu nær sleitulaust í um þrjú ár.Tony-verðlaunahafar í sýningunni Þetta er því langt ferli en hvernig er tilfinningin að fá bráðum loks að flytja þetta fullbúið á sviði? „Það er svolítið skrýtið. Fyrst var þetta bara til í höfðinu á mér, á þessum skringilega stað. Svo sér maður þetta verða til og fær til sín þetta gríðarlega hæfileikaríka fólk.“ Fríður flokkur listamanna tekur þátt í uppfærslunni sem er sett upp á svokölluðum Off-Broadway vettvangi. Cady Huffman tók að sér hlutverk en hún er Tony-verðlaunahafi, til sömu verðlauan hefur ljósameistar sýningarinnar Jeff Croiter unnið og danshöfundur sýningarinnar er enginn annar en Lee Proud sem samdi sporin í Billy Elliot og Hairspray. Leikstjórinn er Bergur Þór Ingólfsson. Það er ótrúlegt að fylgjast með honum vinna. Hann er leikhússnillingur.“ Ívar segir Berg hafa ótrúlega tilfinningu hvað virkar og hvað ekki í leikhúsi. Verkið er stórt í sniðum en Ívar segir enga leið að spá fyrir um hvernig áhorfendur komi til með að bregðast við. „Þetta er allt frekar súrrealískt og ekki víst að fólk kveiki strax á þessari framúrstefnu,“ segir hann og hlær. „Það er í raun og veru sigur að gera þetta. Hvernig svo sem fer, hvort sem þetta slær í gegn eða ekki. Það kemur bara í ljós.“ „Öll umgjörðin í verkinu er súrrealísk og framandi. Kjarninn er saga sem við könnumst öll við. Fjallar um þetta mannlega. Fjallar um hvað við viljum í lífinu.“ Hér fyrir neðan má hlusta á tónlistina úr verkinu.
Mest lesið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Crawford minnist sonarins Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Lífið samstarf Fleiri fréttir Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Sjá meira