Lífið

Sigrún er rauðhærðasti Íslendingurinn

Sigrún Ósk Árnadóttir er rauðhærðasti Íslendingurinn. Með á myndinni er sá efnilegasti, Baltasar Breki, ásamt föður sínum, Símoni Gísla Símonarsyni.
Sigrún Ósk Árnadóttir er rauðhærðasti Íslendingurinn. Með á myndinni er sá efnilegasti, Baltasar Breki, ásamt föður sínum, Símoni Gísla Símonarsyni. vísir/sigrún
Rauðhærðasti Íslendingurinn var valinn á Írskum dögum á Akranesi í dag, en það var 16 ára Dalvíkingur, Sigrún Ósk Árnadóttir, sem bar sigur úr býtum. Hún fékk að launum ferð til Dublin fyrir tvo með Úrval Útsýn og hyggst bjóða pabba sínum með í ferðina. Keppninn var haldin í fimmtánda skipti í dag og 35 rauðhærðir Íslendingar voru skráðir til leiks. Efnilegasti rauðhærði Íslendingurinn var einnig valinn en það var hinn ungi og efnilegi Baltasar Breki Símonarson sem hreppti þann titil. 

Sigrún gerði sér sérstaklega ferð á Írska daga til að keppa. „Systir bekkjarsystur minnar sigraði einu sinni í keppninni og síðan hefur fólk verið að hvetja mig til að fara og keppa“ segir Sigrún sem sér ekki eftir þeirri ákvörðun. Rauði liturinn á hárinu kemur frá móður hennar en Sigrún er sú eina af sex systkinum sem fékk hann í arf. „Mamma var með alveg eins lit á hárinu og ég þegar hún var yngri en það er orðið ljósara í dag.“

Hún segist ætla að bjóða pabba sínum með til Dublin þar sem þau feðgin hafi aðeins einu sinni áður farið saman til útlanda. „Hann hefur áður komið til Dublin en ekki ég. Ég er mjög spennt að koma þangað og skoða mig um í borginni.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.