Óvissustig í Múlakvísl og Jökulsá Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 8. júlí 2014 17:25 Hlaupið í Múlakvísl árið 2011. vísir/vilhelm
Hlaupvatn er komið fram í Múlakvísl og Jökulsá á Sólheimasandi og hefur ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Hvolsvelli því lýst yfir óvissustigi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum. Að sögn Gunnars B. Guðmundssonar, jarðfræðings hjá Veðurstofu Íslands er um lítið hlaup að ræða. „Það er búin að vera aukin skjálftavirkni inni í Kötluöskjunni frá því í byrjun mánaðar. Jarðskjálftarnir eru grunnir, en stærsti var í morgun, þrír að stærð, klukkan 9.18,“ segir Gunnar sem segir þó að ekkert bendi til þess að eldgos í vændum. „Á morgun, 9. júlí, eru þrjú ár síðan síðast hljóp úr Múlakvísl og brúin hrundi en hlaup eru algeng í júlímánuði.“Fólk beðið um að fara með gát Ferðafólk er beðið um að fara að öllu með gát á þessum svæðum vegna hættu á aukinni brennisteinsmengun. „Í miklu magni getur mengunin verið hættuleg og það getur liðið yfir fólk. Það er þó ekki við veginn en ef fólk fer nálægt þá er hætta á því,“ segir Gunnar. Síðustu daga hefur jarðhitavirkni undir Kötluöskju aukist og leiðni hefur farið hækkandi í Múlakvísl og Jökulsá á Sólheimasandi. Að sögn Gunnars hefur töluverð brennisteinslykt verið á svæðinu síðan þá. Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarrás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Fleiri fréttir Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Sjá meira