Lífið

One Direction stjarna meidd

Niall Horan vill ekki að aðdáendur kasti hlutum í sig.
Niall Horan vill ekki að aðdáendur kasti hlutum í sig.
One Direction stjarnan Niall Horan bað aðdáendur sína á samfélagsmiðlinum Twitter að takmarka því sem hent er á sviðið á meðan hljómsveitin er að koma fram.

Á tónleikum sveitarinnar í Amsterdam var einhverju kastað á sviðið sem hæfði Horan í hnéð að kvartaði hann sáran yfir sársauka sem hlaust í kjölfar þess.

Í öðrum skilaboðum á Twitter útskýrði hann fyrir aðdáendum að hann hafi verið í aðgerð á hnénu fyrir fimm mánuðum síðan og sé ennþá að ná sér eftir aðgerðina.

Skilaboðin má sjá hér að neðan.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.