Formúla 1

Renault mun ekki ná framförum fyrr en 2015

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Red Bull og Renault stunda samstarf sem hangir á bláþræði.
Red Bull og Renault stunda samstarf sem hangir á bláþræði. Vísir/Getty
Franski vélaframleiðandinn Renault gerir ekki ráð fyrir miklum bætingum á vél sinni í ár vegna takmarkana á þróun.

Christian Horner liðsstjóri Red Bull, sem er mikilvægasti viðskiptavinur Renault kallaði 2014 vélina „óásættanlega,“ eftir keppnina í Austurríki.

Red Bull hefur ítrekað heimtað úrbætur á tímabilinu. Sebastian Vettel hætti keppni í þriðja sinn á tímabilinu í síðustu keppni vegna vélavandræða. Slíkt þekktist varla hjá Red Bull eða Renault fyrir reglubreytinguna sem tók gildi fyrir yfirstandandi tímabil.

Reglurnar segja að setja skuli þróun vélanna á frost á meðan á keppnistímabilinu stendur. Vissar undanþágur fengust í ár vegna þess hve miklar breytingar voru geðrar. Nú hins vegar hefur vélafrostið tekið gildi.

„Við getum þróað olíu og eldsneyti og við getum uppfært það út tímabilið, og hugbúnaðinn. Það má með sanni segja að staðan sé sú núna að við verðum að reyna að ná sem mestu út úr því sem við höfum. Við munum ekki auka aflið um 10% fyrir næstu keppni með því að breyta hugbúnaðinum - það er ekki hægt,“ segir Remi Taffin yfirmaður kappakstursmála hjá Renault.

Renault lítur á næsta ár sem nýtt upphaf.

„Þróunin (í ár) er eitt en við höfum hafið að þróa vél fyrir næsta ár nú þegar. Það er ekki vegna þess að við erum að einbeita okkur meira að 2015 en 2014 heldur bara vegna þess að fyrir 2015 vélina höfum við frelsi til að þróa vélina okkar, koma með nýja hluti, í raun næstum algjört (frelsi),“ sagði Taffin að lokum.


Tengdar fréttir

Maldonado: Lotus í topp 5 á Spáni

Pastor Maldonado, ökumaður Lotus telur að liðið geti náð einu af fimm efstu sætunum í spænska kappakstrinum. Hann segir að bíllinn geti það ef hann bilar ekki eða lendir í óhappi.

Renault-vélar í vanda í Malasíu

Fjórir bílar með Renault-vélar hættu keppni í Ástralíu vegna vélabilunar. Renault trúir því að fyrirtækið sé að ná árangri í átt að meiri áreiðanleika.

Bílskúrinn: Hvað er að frétta eftir Bahrain?

Breski ökumaðurinn Lewis Hamilton á Mercedes vann keppnina í Bahrain, liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar og Sergio Perez á Force India varð þriðji. Við förum yfir málin í Bílskúrnum, léttu hliðinni á Formúlu 1 hér á Vísi.

Renault uppfærslurnar virka

Pastor Maldonado ók Lotus bíl sínum einn hring á föstudag og tuttugu og einn hring á laugardag. Liðið var þá komið saman við auglýsingatökur á brautinni í Jerez á Spáni. Lotus hefur þar með notað þá tvo daga sem hvert lið má nota í auglýsingaskyni.

Vettel í vandræðum með nýja Red Bull bílinn

Sebastian Vettel, fjórfaldur heimsmeistari í formúlu eitt, er í vandræðum með nýja Red Bull bílinn en hann hefur síðustu tvo daga á Spáni að prufukeyra bílinn. Ef marka má þessa tvo fyrstu daga þá er allt aðra sögu að segja af þessum bíl en þeim sem skilaði Red Bull mönnum yfirburðarsigri í fyrra.

Red Bull enn í vanda

Þjóðverjinn Nico Hulkenberg hjá Force India var fljótastur á fyrsta æfingadegi í Bahrain í dag.

Red Bull varar Renault við

Red Bull liðið hefur varað Renault við að liðið gæti leitað annað eftir vélum á næsta ári. Red Bull vill sjá greinanlegar framfarir fyrir lok júní. Annars gæti liðið farið að huga að samstarfi við annan vélaframleiðanda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×