Umfjöllun: Ísland - Portúgal 33-28 | Sigur á Ísafirði Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 1. júní 2014 13:44 Vísir/Stefán
Ísland lagði Portúgal 33-28 í vináttulandsleik í handbolta á Ísafirði í dag. Ísland var sterkari aðilinn í leiknum en þurfti að hafa fyrir sigrinum. Portúgal er nokkuð frá því að vera í sama gæðaflokki og Ísland í handbolta. Engu að síður þarf að halda einbeitingu gegn liðinu því það refsar fyrir hver mistök með ösku fljótum leikmönnum sem keyra fram. Portúgal skoraði ellefu mörk úr hraðaupphlaupum í leiknum en flest þeirra komu eftir kæruleysislegar sóknir Íslands. Íslensku leikmennirnir virtust ekki búast við erfiðum leik í upphafi en náðu að bæta vörn og sókn er leið á fyrri hálfleik og voru fjórum mörkum yfir hálfleik 15-11. Ísland skoraði fyrsta mark seinni hálfleiks en þá minnti Portúgal aftur á sig og skoraði fjögur mörk á þremur mínútum og jafnaði metin. Tapaðir boltar og ótímabær skot varð Íslandi að falli á þeim kafla en undir öruggri leikstjórn Snorra Steins Guðjónssonar bætti Ísland úr því og náði forystu á ný sem liðið lét aldrei af hendi.Bjarki Már Elísson nýtti tækifærið mjög vel í dag. Hann byrjaði á bekknum en kom inn um miðbik fyrri hálfleiks og skoraði mest allra í leiknum, 8 mörk. Róbert Gunnarsson fékk mikið pláss á línunni, sérstaklega er leið á leikinn og skoraði 7 mörk. Vörn íslenska liðsins hefur oft verið betri og létu leikmenn óhefðbundinn sóknarleik Portúgals oft fara illa með sig. Vörnin stóð þó ágætlega á köflum en íslenska liðið bætti alltaf í þegar Portúgal nálgaðist og því má með sanni segja að Ísland hafi verið með örugg tök á leiknum.
Handbolti Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira