Heimsótti álfa í Central Park Birta Björnsdóttir skrifar 30. maí 2014 20:00
Ragnhildur Jónsdóttir rekur ásamt eiginmanni sínum Álfagarðinn, miðstöð álfa og huldufólks, í Hafnarfirði. Álfagarðurinn er staðsettur í Hellisgerði en þar er jafnframt friðsamt samfélag álfa, huldufólks og dverga, og hefur verið lengi. „Hér er mjög friðsælt samfélag sem rúmar bæði álfa, huldufólk, dverga og alls kyns verur. Auðvitað eru til svartálfar og verur sem eru pirraðar og fúlar en þær þrífast ekki hér." Ragnheiður hefur búið í nágrenni Hellisgerðis frá því hún var barn og á hér marga góða vini. „Æskuvinkona mín, huldukonan Púlda, Fróði og fleiri sem ég þekki frá því ég var barn eru hérna ennþá." Ragnhildur segir alla geta myndað tengsl við álfa og huldufólk. „Á einn eða annan hátt. Við finnum öll ýmislegt á okkur, finnum mun á orku hvar okkur líður vel, sjáum eitthvað útundan okkur eða dreymir eitthvað. Við skynjum öll á einhvern hátt." Ragnhildur segist reglulega heyra efasemdaraddir frá fólki sem ekki trúir á álfa og huldufólk, sjálf segist hún ekki kunna neinar skýringar á því hvers vegna verurnar eru henni sýnilegar. Ragnhildur er nýkomin heim frá Bandaríkjunum þar sem hún var beðin um að koma og hjálpa til við að koma aftur á tengslum milli álfa og dverga og mannfólks í Central Park í New York. Með í för voru þónokkrir álfar og huldufólk. Ragnhidur segir álfa þægilega ferðafélaga, það kosti ekkert að ferðast með þá milli landa. Þeir séu á vappi um flugvélina en kunni sig betur en það að þeir setjist í kjöltu flugfarþega. Og það verður nóg um að vera í Álfagarðinum í sumar, þar verður meðal annars boðið upp á gönguferðir um hýbýli íbúa Hellisgerðis, þess friðsæla samfélags.
Mest lesið Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Heyrði mikla skruðninga í Hítárdal fyrir miðnætti á föstudag Innlent Veiðiþjófar stálu frá barni við Hítarvatn Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Innlent Helga aðeins 15 mínútur að landa fyrsta laxinum Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Innlent Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Innlent Fleiri fréttir Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Sjá meira