Innlent

Segja kostnaðarreikninga ekki liggja fyrir

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
VÍSIR/STEFÁN
Aðeins sex af fimmtán frambjóðendum sjálfstæðisflokksins  í Kópavogi hafa skilað upplýsingum til Ríkisendurskoðunar um kostnað vegna prófkjörs. Þetta kemur fram í bæjarblaðinu Kópavogi.

Prófkjörið var haldið 8. febrúar en samkvæmt lögum skal skila uppgjöri til Ríkisendurskoðunar eigi síðar en þremur mánuðum eftir prófkjör hafi kostnaður farið yfir 400 þúsund krónur. Hafi kostnaðurinn verið minni er þó mælst til þess að frambjóðendur sendi yfirlýsingu um slíkt.

Meðal þeirra sem ekki hafa hvorki skilað uppgjöri né yfirlýsingu eru Ármanna Kr. Ólafsson, oddviti flokksins og Margrét Friðriksdóttir sem skipar annað sætið.

Ármann sagði í samtalið við bæjarblaðið að sótt hefði verið um frest til að skila inn gögnum. Endanlegir kostnaðarreikningar og styrkir hefðu enn ekki skilað sér. Hann segir þó ljóst að kostnaðurinn sé innan tilskilinna marka.

Samkvæmt lögum mega frambjóðendur í Kópavogi nota mest eina milljón króna til prófkjörs.

Margrét segir tímann sem gefinn sé til að ganga frá uppgjörinu einfaldlega of stuttan enda algengt að frambjóðendur nái ekki að skila innan settra viðmiðunarmarka. Þetta kemur fram á fréttasíðunni Kópavogsfréttum. Hún segir í raun algengara en ekki að uppgjör dragist fram yfir tímamörk.

Hvað hana varði séu ennþá ófrágengin loforð um stuðning við framboð og því ekki ljóst hver endanleg niðurstaða verði. Hún muni senda ríkisendurskoðun uppgjörið um leið og það liggur fyrir. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×