Innlent

Oddvitaáskorunin - Kominn tími á breytingar í Hafnarfirði

Klónuð kona í kosningabaráttu.
Klónuð kona í kosningabaráttu.

Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2014 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í kjördæmum um land allt að taka þátt.

Rósa Guðbjartsdóttir leiðir lista Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði í sveitarstjórnarkosningunum í vor.

Rósa er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Hún hefur setið í bæjarstjórn Hafnarfjarðar síðastliðin átta ár, setið í bæjarráði, fræðsluráði og skipulags- og byggingarráði og var auk þess varaþingmaður í Suðvestur-kjördæmi um nokkurra ára skeið.

Rósa er stjórnmálafræðingur að mennt, starfaði um langt árabil við fréttamennsku og fjölmiðla, var framkvæmdastjóri Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna um fimm ára skeið en hefur síðastliðin fimm ár verið formaður stjórnar félagsins. Undanfarin ár hefur Rósa starfað við ritstjórn og markaðsmál hjá Bókafélaginu.

Rósa er gift Jónasi Sigurgeirssyni og saman eiga þau fjögur börn á aldrinum 9-19 ára. Helstu áhugamál eru íþróttir, bækur, matreiðsla, útivera og hreyfing af ýmsu tagi. Áherslumál eru ábyrg fjármálastjórn, átak í atvinnusköpun og markaðssetningu á bæjarfélaginu, fjölgun sælureita til útivistar og afþreyingar, hreinna og fegurra umhverfi, net- og tæknivæðing í skólunum og að Hafnarfjörður verði heilsubær þar sem heilsuvitund verði sett í forgrunn.

YFIRHEYRSLAN

Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi?

Hellisgerði í Hafnarfirði.

Hundar eða kettir?

Er hrifin af bæði hundum og köttum, en þar sem börnin eru með ofnæmi fyrir þeim síðarnefndum eigum við bara hund, væri alveg til í að eiga tvo ketti líka. En ég er skrýtna konan sem klappa kisunum í hverfinu óspart og tek þær minnstu og sætustu jafnvel í fangið.

Hver er stærsta stundin í lífinu?

Þegar ég fann í fyrsta skipti fyrir nýju lífi innan í mér.

Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?

Grillaður lax og silungur með ferskum kryddjurtum er það besta í heimi.

Hvernig bíl ekur þú?

Átta ára Mitsubishi-jeppling en nota hjólið sem mest innanbæjar.

Besta minningin?

Þegar ég fékk nýfædd börnin mín í fangið.

Hefur þú verið tekinn af lögreglunni?

Kannski einhvern tíma fyrir of hraðan akstur.

Hverju sérðu mest eftir?

Er lítið í basksýnisspeglinum, horfi frekar fram á veginn. Ekkert eitt er ofarlega í huga mínum yfir hluti sem ég sé eftir.

Hvað er það skrýtnasta sem þú hefur gert?

Þegar ég lét hafa mig í svifdrekaflug. Það var mjög gaman og spennandi en það myndi ekki hvarfla að mér í dag að endurtaka það.

Draumaferðalagið?

Mig langar mest að fara með fjölskylduna til Tampa í Flórída, en þar bjuggum við um skeið um síðustu aldamót!

Hefur þú migið í saltan sjó?

Nei.

Hefur þú viðurkennt mistök?

Já, það er hluti af því að þroskast og vaxa og dafna í starfi og leik.

Hverju ertu stoltastur af?

Börnunum mínum.

Fram að sveitarstjórnarkosningunum 31. maí munum við birta kynningu á oddvitum víðsvegar um landið. Allir oddvitar geta tekið þátt í Oddvitaáskorun Vísis. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á netfanginu samuel@365.is.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×