Innlent

Oddvitarnir í Reykjavík mæta á Sprengisand

Sigurjón M. Egilsson.
Sigurjón M. Egilsson.
Aukaþáttur af Sprengisandi með Sigurjón M. Egilssyni verður á Bylgjunni á morgun Uppstigningadag í tilefni sveitarstjórnarkosninganna sem fram fara á laugardaginn.

Sigurjón á von á frambjóðendum til sín og verður þátturinn litaður af kosningunum. Hann segir að spennan sé í hámarki í röðum frambjóðenda  og því mikið undir.

Þeir frambjóðendur sem mæta í hljóðverið eru Dagur B. Eggertsson, Halldór Halldórsson, Björn Blöndal, Þorvaldur Þorvaldsson og Sóley Tómasdóttir.

Rætt verður um kosningarnar á höfuðborgarsvæðinu sem og annarsstaðar á landinu. Þátturinn verður lengri en venjulega og hefst klukkan 9.

Hægt er að hlusta á Bylgjuna í beinni í vefspilara hér á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×