Innlent

Frambjóðendur Bjartrar framtíðar afgreiða ís ofan í borgarbúa

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Oddvitinn tók sig vel út í búningnum.
Oddvitinn tók sig vel út í búningnum. mynd/heiða kristín helgadóttir
Frambjóðendur í fimm efstu sætum Bjartrar framtíðar í Reykjavík skófla nú ískúlum ofan í vöffluform og ílát borgarbúa í ísbúðinni Valdís. Vísir náði tali af Sigurði Birni Blöndal, oddvita listans.

„Þetta er alveg hreint brjálað djobb, alveg vitlaust að gera,“ segir Sigurður og bætir því við að fólk bíði í röðum eftir ís en allir séu með bros á vör.“

Elsa Yeoman, 2. sæti, og Sigurður Björn hafa nóg að gera.mynd/heiða kristín helgadóttir
Aðspurður hvernig það hafi komið til að frambjóðendurnir hafi ákveðið að afgreiða ís segir Sigurður hugmyndina hafa komið upp á einhverjum morgunfundinum.

„Við erum alltaf að leita leiða til þess að kynna okkur þar sem við getum hitt fólk án þess að vera of uppáþrengjandi. Þá stakk einhver upp á því að við afgreiddum ís og gæfum öllum aukakúlu.“

Aukakúlan er að sögn Sigurðar „fjólublá bláberjakúla og alveg æðislega góð“ en það var Gylfi í Valdís sem bjó ísinn sérstaklega til fyrir uppákomuna.

„Fólk er að fá sér alveg upp í fjórar kúlur, og þá er þetta yfirleitt síðasta kúlan.“

Sigurður segist vel geta hugsað sér að vinna í ísbúð, hvort sem hann verður borgarstjóri eða ekki, en hann hefur þó enga reynslu af því að afgreiða ís. Það hefur Eva Einarsdóttir, sem skipar fjórða sæti listans, hins vegar.

„Hún vann í ísbúðinni í Kringlunni og var oftar en einu sinni starfsmaður mánaðarins. En við hin fáum mjög góða leiðsögn hjá starfsfólkinu. Svo góða að við hreinlega getum ekki gert mistök.“

Frambjóðendurnir ætla að standa vaktina í kvöld þar til ísinn klárast.

Ilmur Kristjánsdóttir, 3. sæti (t.v.) og Eva Einarsdóttir, 4. sæti.mynd/heiða kristín helgadóttir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×