Golf

Adam Scott ætlar ekki úr græna jakkanum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Fyrsta risamót ársins í golfinu, Masters-mótið, fer af stað í dag þegar par 3-keppnin fer fram en hún er ávallt haldin daginn fyrir fyrsta keppnisdag.

Á meðal þátttakenda í henni, og auðvitað aðalkeppninni, er Ástralinn AdamScott sem á titil að verja á Agusta en hann vann Masters-mótið í fyrra eftir sigur ÁngelCabrera í umspili.

Hann er ekkert á því að klæða einhvern annan í hinn sögufræga græna jakka sem sigurvegarinn fær heldur stefnir hann að því að verða fjórði maðurinn sem vinnur mótið tvö ár í röð.

Það hefur aðeins þremur af þeim allra bestu í sögunni tekist. Tiger Woods vann Masters 2001 og 2002, Nick Faldo árin 1989 og 1990 og JackNicklaus árin 1965 og 1966.

„Ég vil bæta mínu nafni við þennan lista. Mér finnst ég vera að spila mjög vel,“ sagði Adam Scott eftir æfingahring á vellinum í gær.

„Undanfarin ár get ég í sannleika sagt að mér líður vel þegar ég kem á stórmótin. Ég er alltaf að spila betur og betur á stórmótunum.“


Tengdar fréttir

Westwood eygir græna jakkann

Fyrsta stórmót ársins í golfheiminum hefst á fimmtudaginn. Barist verður um græna jakkann á Masters mótinu á Augusta. Bretinn Lee Westwood dreymir um að verða fyrsti Evrópubúinn til að vinna mótið í 15 ár.

Aldrei fleiri nýliðar á Masters

Það verða alls 24 nýliðar sem leika á Masters mótinu í ár og hafa þeir aldrei verið fleiri. Liðin eru 35 ár frá því að nýliði stóð uppi sem sigurvegari í mótinu.

Masters-vikan byrjaði með þrumuveðri

Fyrsta æfingahring fyrir Masters mótið, sem hefst á fimmtudag, var aflýst í dag vegna þrumuveðurs. Þetta er í fyrsta sinn í 11 ár sem aflýsa þarf æfingahring.

McIlroy og Spieth leika saman

Búið er að tilkynna rástíma fyrir fyrstu tvo keppnisdagana á Masters mótinu sem hefst á fimmtudag á Augusta National vellinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×