Golf

Westwood eygir græna jakkann

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Westwood langar í græna jakkann
Westwood langar í græna jakkann vísir/getty
Fyrsta stórmót ársins í golfheiminum hefst á fimmtudaginn. Barist verður um græna jakkann á Masters mótinu á Augusta. Bretinn Lee Westwood dreymir um að verða fyrsti Evrópubúinn til að vinna mótið í 15 ár.

Spánverjinn Jose Maria Olazabal var síðasti Evrópubúinn til að vinna mótið, það var árið 1999, en síðustu ár Westwood verið sá Evrópumaður sem hefur komist hvað næst því að vinna þetta goðsagnarkennda mót á síðustu árum.

Westwood hefur fjórum sinnum hafnað í einu af átta efstu sætum mótsins og núna trúir hann að hann geti farið alla leið.

Tiger Woods missir af mótinu vegna meiðsla og Phil Mickelson sem vann mótið 2010 þegar Westwood hafnaði í öðru sæti er einnig að berjast við meiðsli.

„Mér hefur alltaf liðið vel hér og það þó Augusta National reyni á allt, kylfurnar, hausinn, leikskipulagið, þolinmæðina og líkamlegt form,“ sagði Westwood sem hefur aldrei unnið stórmót.

„Það þarf allt að ganga upp en því erfiðari sem völlurinn er því betur virðist ég spila.“

Mótið verður í beinni útsendingur á Golfstöðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×