Innlent

Mín skoðun: Katrín Jakobsdóttir mætir í þáttinn

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/pjetur
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, verður gestur Mikaels Torfasonar í þættinum Mín skoðun í opinni dagskrá á Stöð 2 og Vísi í dag.

Þá munu þeir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, og Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, fara yfir málin með þáttastjórnandanum.

Fastir liðir á borð við Fréttir vikunnar, Kafbátinn og Virkur í athugasemdum verða á sínum stað.

Þátturinn hefst klukkan 13 og verður sem fyrr segir í opinni dagskrá á Stöð 2 og hér á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×