Erlent

Ísraelsmenn skutu á 29 skotmörk á Gaza

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Að sögn Al Jazeera særðust þrír í árásum Ísraelsmanna í dag.
Að sögn Al Jazeera særðust þrír í árásum Ísraelsmanna í dag. vísir/afp
Ísraelskar herflugvélar skutu á 29 skotmörk á Gaza-ströndinni í dag í kjölfar eldflaugaárása frá Gaza á Ísrael. BBC greinir frá og segir palestínska uppreisnarmenn hafa boðað vopnahlé sem Ísraelsmenn hafi samþykkt.

Ekki hafa borist fregnir af mannfalli en uppreisnarmenn á Gaza eru sagðir hafa skotið um sextíu eldflaugum á Ísrael í dag og í gær. Að sögn Al Jazeera særðust þrír í árásum Ísraelsmanna í dag, þar af einn alvarlega.

Að sögn talsmanns Ísraelhers hæfðu átta eldflaugar íbúasvæði en nokkrar eldflaugar voru skotnar niður.

Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, fordæmir ofbeldið í yfirlýsingu og biður stríðandi fylkingar að sýna stillingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×