Lífið

Justin Timberlake heldur tónleika á Íslandi í sumar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kemur fram á tónleikum á Íslandi 24. ágúst næstkomandi.
Kemur fram á tónleikum á Íslandi 24. ágúst næstkomandi. visir/afp
Justin Timberlake kemur fram á tónleikum á Íslandi 24. ágúst næstkomandi. Tónleikarnir, sem haldnir verða í Kórnum í Kópavogi, eru liður í heimstónleikaferðalagi söngvarans.

Þetta verður í fyrsta sinn sem Justin Timberlake kemur fram á Íslandi og um leið í fyrsta skipti sem tónleika fara fram í íþróttahúsinu Kórnum. Miðasala hefst þann 6. mars klukkan 10 á midi.is.

Meðlimir í The Tennessee Kids (#TNKids) sem er glænýr aðdáendaklúbbur Justins Timberlake fá tækifæri til að kaupa miða í sérstakri forsölu þriðjudaginn 4. mars.

Í tilkynningu frá Senu, sem stendur að tónleikunum, kemur fram að Bandaríkjamaðurinn 33 ára sé þekktur fyrir sérstaklega glæsilega tónleika. Timberlake er einn vinsælasti tónlistarmaður í heiminum í dag.

Justin Timberlake tilkynnti um tónleikana á Twitter-síðu sinni í dag. Hann fór hins vegar ekki alveg rétt með heiti höfuðborgar Íslands auk þess sem tónleikarnir sjálfir fara fram í Kópavogi.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×