Stefnur og straumar á vinnustöðum Ólafur Kári Júlíusson skrifar 21. febrúar 2014 07:00 Vinnustaðir eru oftar en ekki að reyna að bæta frammistöðu sína hvort sem þeir vilja bæta líðan starfsfólks, auka framleiðni, spara fjármuni eða auka hagnað. Það eru margar leiðir til að ná fram umbótum og spurningin er gjarnan – Hvaða leið eigum við að fara? Til allrar hamingju er ekki skortur á framboði fjölbreyttrar þjónustu og aðferða til að hjálpa vinnustöðum. Vandinn verður til þegar það kemur að því að velja leiðir til að ná fram umbótum. „Trendý“ lausnir í flottum umbúðumVandamálið sem undirritaður hefur áhyggjur af er tískubólur og glysgjarnar yfirlýsingar. Oft verða fyrir valinu aðferðir sem seljast vel og líta vel út á pappír. Svo kemur annað í ljós þegar raunveruleikinn blasir við. Það sem meðal annars einkennir þessar aðferðir eru flott slagorð: „Aukin samhæfing þverfaglegra teyma með heildrænni nálgun!“. Aðferðinar bjóða upp á einfaldar lausnir sem henta öllum, líka þér! Ekki skemmir fyrir að allir hinir eru að gera þetta. Trúverðugleikinn er oft mikill þar sem að ýmis viðskipta og –vinnusálfræði „gúrú“ hafa sett nafnið sitt við aðferðina, skrifuðu kafla í bókinni og náðu ekki góðum heldur ótrúlegum árangri. Sölubæklingnum fylgja gjarnan stór loforð um bætta frammistöðu, meiri starfsánægju, aukin hagnað og minna álag á stjórnendur. Skiljanlega hrífumst við af þessu og látum slag standa. Svona seljast margar lausnir, loforðin selja betur en staðreyndinar. Ég veit t.d. ekki um marga gosframleiðendur sem segja „Drekktu gosið okkar, misstu tennurnar og snarhækkaðu tannlæknakostnað!“ – Nei, lífið er ekki svo einfalt. Þessari sölumennsku fylgir gjarnan breytingafyllerí á vinnustaðnum með tilheyrandi fyrirtækjaþynnku og móral eftir ævintýrið. Það er ástæða fyrir því að langflestar breytingar á vinnustað misheppnast.Ein stærð hentar öllumVandinn er að margar þessara aðferða eru einfaldar og leysa því einföld vandamál. Alvöru breyting á vinnustað krefst tíma, skipulagningar og skuldbindingar. Komast þarf að rót vandanns og laga til þess að ná fram raunhæfri breytingu sem endist. Ef tískubólurnar bjóða raunverulega upp á svona flottar lausnir af hverju hverfa þær þá jafn fljótt og þær birtust? Það er gríðarlega mikilvægt að staldra við og kanna hvort að þær aðferðir sem er verið að selja henti vinnustaðnum raunverulega. Hvaða markmiðum þarf að ná? Er þetta raunhæf leið fyrir okkar vinnustað? Getur litla fyrirtækið okkar í alvöru notað sömu aðferð 3000 manna hugbúnaðarrisi? Mannauður vinnustaðarins er í húfi sem og miklar peningafjárhæðir og því er mikilvægt að tryggja að sem bestar upplýsingar sé til staðar um það sem þarf að gera og þá vöru sem á að kaupa. Gagnsemi eða vinsældirHöfum í huga hvort að þær lausnir sem við ætlum að bjóða starfsfólkinu séu gagnlegar og raunhæfar. Vinsælu lausninar eru oftast einföldu lausninar en slíkar lausnir skila gjarnan ekki þeim árangri sem lofað er til lengri tíma. Raunveruleikinn er flókinn og fyrir vikið eru gagnlegar lausnir yfirleitt flóknar, taka tíma og krefjast vinnu. Hér á landi er fullt af fólki sem hefur góða menntun, mikla reynslu og notar gagnreyndar aðferðir. Þetta eru gjarnan aðferðir sem hafa ekki náð vinsældum af því að þær er ekki hægt að innleiða á tveimur vikum með aðstoð sölufulltrúa gegnum tölvupóst. Þessar gagnreyndu aðferðir hafa það þó með sér að þær hafa verið prófaðar í bak og fyrir og það er hægt að sýna fram á það að þær skila raunverulegum, varanlegum og raunhæfum árangri. Hvað vilt þú fyrir þitt fyrirtæki?Lesendur Vísis geta sent inn greinar á ritstjorn@visir.is. Greinunum þarf að fylgja mynd af höfundi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson Skoðun Ekki er allur afgangur eins Birta Karen Tryggvadóttir Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir Skoðun Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand skrifar Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ekki er allur afgangur eins Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson skrifar Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar Skoðun Skiptir máli að skipta máli í vinnunni? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Haust til hægri Baldvin Björgvinsson skrifar Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Það sem ekki sést í Excel-skjali skrifar Skoðun Hver sat við borðið? Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Núll sem heldur Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Grindavík var ekki svartur svanur Snorri Birgisson skrifar Skoðun Stóra samhengið sem gleymdist Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Sjá meira
Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason Skoðun
Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir Skoðun
Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir Skoðun
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar
Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar
Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar
Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason Skoðun
Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir Skoðun
Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir Skoðun