Innlent

Lögleiðing fíkniefna í Minni skoðun

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þátturinn Mín Skoðun í umsjón Mikaels Torfasonar, aðalritstjóra fréttastofu 365, verður á dagskrá á sunnudaginn.

Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokks og formaður fjárlaganefndar Alþingis, og Katrín Júlíusdóttir, þingmaður Samfylkingar og fyrrverandi iðnaðar-, fjármála- og efnahagsmálaráðherra, leiða saman hesta sína og fara yfir fréttir vikunnar.

Aðalgestur þáttarins verður Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra, en Mikael mun ræða við hann um heilbrigðiskerfið og afglæpavæðingu fíkniefna.

Þátturinn hefst klukkan 13.00 á sunnudag og er í opinni dagskrá. Þáttinn má einnig sjá á Vísi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×