Innlent

Þingfundi frestað

Jakob Bjarnar skrifar
Mikil átök eru nú á þingi, jafnt á þingfundum sem að tjaldabaki. Kastast hefur í kekki milli þeirra Bjarna Benediktssonar og Katrínar Júlíusdóttur
Mikil átök eru nú á þingi, jafnt á þingfundum sem að tjaldabaki. Kastast hefur í kekki milli þeirra Bjarna Benediktssonar og Katrínar Júlíusdóttur vísir/valli
Til stóð að þingfundi yrði fram haldið klukkan 13:30 en Einar K. Guðfinnsson, forseti þingsins frestaði þá fundi og boðaði að hann myndi hefjast klukkan 14:00. Aftur þá var fundi frestað um hálftíma.

Samkvæmt heimildum Vísis er Einar að funda með þingflokksformönnum og líkast til er verið að reyna að komast að samkomulagi en dagskrá þingsins er í hnút vegna umræðu um þingsályktunartillögu Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra um að slíta beri viðræðum við ESB.

Ljóst er að gríðarlegur ágreiningur ríkir milli stjórnarliða og stjórnarandstöðu sem gagnrýna fundarstjórn harðlega; meðal annars á þeim forsendum að fráleitt sé að fram sé komin stjórnartillaga um að umsvifalaust beri að slíta viðræðum við Evrópubandalagið í ljósi þess að til stóð að ræða tiltölulega nýútkomna skýrslu um Evrópubandalagið. Og taka ákvörðun eftir þá umræðu. Þingmenn hafa ítrekað spurt hvað valdi slíkri dagskrártilhögun og vilja meina að eitthvað búi að baki slíkum asa, meira en fram hefur komið.

Uppfært klukkan 13:30

Enn er fundi frestað um hálftíma.

Uppfært klukkan 14:30

Enn er fundi frestað um hálftíma. Samkvæmt heimildum Vísis var búið að ná samkomulagi um að utanríkisráðherra myndi mæla fyrir tillögu sinni í dag og þá myndi fulltrúi hvers flokks um sig fá svigrúm til andmæla og flytja ræðu um tillöguna. Síðan yrði málið sett í nefnd. Á síðustu stundu kom fram krafa frá ríkisstjórninni um að sett yrði niður ákveðin dagsetning um hvenær málið færi í atkvæðagreiðslu og taldi stjórnarandstaðan sig ekki geta fallist á það. Enn er fundað um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×