Kári stefnir lögmanninum sínum Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 11. febrúar 2014 14:33 Kári Stefánsson og Karl Axelsson.
Kári Stefánsson hefur stefnt lögmanninum Karli Axelssyni. Ástæðan er sú að Kári vill fá hnekktum úrskurði sem úrskurðarnefnd Lögmannafélagsins kvað upp um þóknun sem Karl Axelsson vill fá greidda fyrir störf sín fyrir Kára. Vb.is greinir frá þessu. Áður hafði Lex lögmannsstofa, en Karl er meðal eiganda á stofunni, fengið veð í húsnæði Kára vegna ógreiddra reikninga. Kári hafði neitað að greiða reikninga frá Lex þar sem hann taldi þá of háa. Reikningurinn mun hafa hljóðað upp á tæpar 2 milljónir króna. Kári hefur staðið í deilum, meðal annars fyrir dómstólum, vegna byggingu húss hans við Fagraþing í Kópavogi. Karl hefur þar komið fram fyrir hönd Kára. Kári skaut deilunni um upphæð reikninga Lex til úrskurðanefndar Lögmannafélagsins sem úrskurðaði Lex í vil sem síðan leiddi til þess að sýslumaður gerði fjárnám í húsinu við Fagraþing. Greint var frá því í lok janúar að Kári hefði höfðað mál gegn Lex til að fá fjárnámskröfunni hnekkt og hefur nú einnig höfðað mál gegn Karli Axelssyni persónulega til að fá niðurstöðu úrskurðanefndarinnar hnekkt, þannig að reikningurinn verði lækkaður. Hús Kára við Fagraþing í Kópavogi er 570 fermetrar að stærð, á tveimur hæðum og hljóðar fasteignamatið upp á 129 milljónir króna.
Mest lesið Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfan sig í gjafavali Atvinnulíf Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Viðskipti innlent Efast um að veitingamenn óttist að styggja embættismenn Viðskipti innlent Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Fleiri fréttir Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Sjá meira