Framhaldsskólakennarar kjósa um verkfall í næstu viku Stefán Ó. Jónsson skrifar 13. febrúar 2014 19:42 FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Framhaldsskólakennarar munu í næstu viku greiða atkvæði um hvort skuli boða til verkfalls vegna yfirstandandi kjaradeilu. Undirbúningur atkvæðagreiðslunnar er þegar hafinn og verða atkvæði greidd dagana 18. til 21. febrúar. Samkvæmt lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna gæti verkfallið þó ekki hafist fyrr en að liðnum ákveðnum tilkynningarfresti en fari svo að verkfallsboðunin verði samþykkt má áætla að framhaldsskólakennarar leggi niður störf að tæpum mánuði liðnum. Kjarasamningar framhaldsskólakennara hafa staðið opnir síðan 31. janúar síðastliðinn og hafa kjaraviðræður kennara við ríkið staðið yfir síðan í desember í fyrra. Enn ber mikið á milli samninganefndar framhaldsskólakennara og ríksins en ríkið býðst til að mæta 17% launahækkunarkröfu kennara með 2,8% hækkun. Fyrirhugað verkfall er liður í því að setja þrýsting á kröfur kennara svo hægt verði að brúa hið mikla bil sem enn aðskilur samninganefndirnar samkvæmt Aðalheiði Steingrímsdóttur, formanni Félags framhaldsskólakennara, í samtölum hennar við fjölmiðla í dag.
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Innlent Fleiri fréttir Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Sjá meira